
Nágrannakona mín ein þekkir vel til á Kúbu, er spænskumælandi og hefur dvalið þar.
Ég hitti hana um kvöldmatarleytið í gær.
Hún sagði að það væri svo merkilegt að á Kúbu enduðu allar umræður á Fidel.
„Hvað hugsar Fidel?“ „Hvað myndi Fidel gera?“ „Hvað finnst Fidel?“ segir fólkið.
Og lýkur þá vitrænni umræðu.