
Í þessari frétt stendur að stjórnendur nýju bankanna hafi staðið hæfispróf Fjármálaeftirlitsins.
Það kemur ekki á óvart. Í prófum hjá FME virðist vera aðeins ein regla:
Enginn fellur.
Þannig stóðust bankarnir álagspróf FME nokkrum dögum áður en þeir hrundu.
FME gaf þá einkunn að allt væri í sómanum með peningamarkaðssjóði bankanna.
Og forstjóri FME hélt hundrað fundi þar sem hann lýsti því hvað íslenska fjármálakerfið væri frábært.
En stjórnarformaðurinn kom fram í auglýsingabæklingi frá Landsbankanum.
FME hefur aldrei komið upp um alvöru innherjasvik á Íslandi, í landi þar sem innherjaviðskipti voru í raun sjálft eðli og inntak kerfisins.
Allt ber að sama brunni: Ekkert fall hjá FME.