fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Eyjan

Ræða Einars Más

Egill Helgason
Sunnudaginn 4. janúar 2009 07:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér er ræðan sem Einar Már Guðmundsson flutti á útifundi á Lækjartorgi í gær:

— — —

„Fyrir fáum árum gengu öflugar flóðbylgjur á land í Asíu. Margir dóu. Samfélög lögðust í eyði. Fjölskyldur leystust upp. Þessu lýsti Condolezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem „dásamlegu tækifæri til þess að hefja uppbyggingu og opna nýja markaði“. Nú er efnahagshruni Íslands oft líkt við náttúruhamfarir, þó að þar séu um að ræða hamfarir af mannavöldum. Samt minna orð Condolezzu Rice óþægilega á orð Þorgerðar Katrínar menntamálaráðherra um að framundan séu „skemmtilegir og spennandi tímar fyrir Sjálfstæðisflokkinn“. Þessi orð lét hún einmitt falla í samhengi við uppbygginguna sem framundan er, efnahagshamfarirnar sem orðið hafa.

Já, það er augljóst mál: Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að skemmta sér í brunarústunum sem sautján ára veldaseta hans hefur skapað og einhver af frjálshyggjupáfunum mun eflaust leika á fiðlu í kjöltu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á meðan sjálf brunaútsalan fer fram og svo verður eflaust góð öryggisgæsla við víggirt hús yfirstéttarinnar þegar þessu er öllu lokið. Svona einsog í Mexíkó og Rússlandi. Það kemur heldur ekki á óvart að heyra að Þorgerður Katrín hafi sérstakt dálæti á Ronald Regan og Margréti Thatcher, þó það sé í sjálfu sér aukaatriði, en það hlýtur að vera skemmtilegt fyrir Samfylkinguna að sitja í ríkisstjórn með svona andríku fólki, gangi maður út frá því að líkur sæki líkan heim.

Hitt stóð líka heima: Þegar íbúar á einu svæðinu í Indónesíu sneru aftur heim til að endurreisa líf sitt þá blasti við þeim skrýtinn veruleiki. Þar sem fábrotin heimili þeirra stóðu áður voru risin vestræn glæsihótel. Já, uppbygging var hafin, nýjir markaðir höfðu opnast. Þetta er kallað hamfara kapítalismi. Hagfræðingar íslensku frjálshyggjunnar sjá vonarglætu í því að brátt munu hinir fjársterku auðmenn flytja fé sitt heim og kaupa eigur okkar fyrir lítinn pening. Þegar fólk er orðið gjaldþrota. Það er þetta sem auðmennirnir eru að bíða eftir og þetta á að framkvæma í skjóli ríkisstjórnarinnar.

Þetta eru hinir skemmtilegu og spennandi tímar fyrir Sjálfstæðisflokkinn, að færa brunarústir efnahagshamfaranna aftur til auðkýfinganna. Þetta er verkið sem auðmennirnar ætla að fremja í skjóli ríkisstjórnar Geirs Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Skuldug fyrirtækin renna skuldlaus aftur til fyrri eigenda sinna. Menn sem skulda þúsund milljarða leysa þetta til sín, einsog að drekka vatn. Þetta er kerfið sem þau ætla að koma á svo allt geti haldist í gamla horfinu. Það er þetta sem Jón Ásgeir vill bjóða okkur upp á í umboði Samfylkingarinnar. Fjölmiðlarnir eru nú þegar komnir til hans og forstjóri 365, Baugsmiðlasamsteypunnar, hótar mótmælendum og hvetur lögregluna til dáða. Það ber vissulega að harma tilgangslaus eignaspjöll við mótmælaaðgerðir, en það má alveg bjóða þeim Ara Edwald og Sigmumdi Erni Rúnarssyni að laga fyrir þá tækin ef Baugsveldið gerir upp skuldir sínar við þjóðina. Ari Edwald sat í Viðskiptaráði þar sem valdarán viðskiptalífsins var skipulagt, þegar viðskiptalífið tók öll völd í landinu og bað löggjafann vinsamlegast um að láta sig hverfa. Honum væri því nær að líta í eign barm þegar hann harmar tekjutap Baugsmiðilsins, þessa sama sama miðils og gert hefur sitt besta til að halda þjóðinni í fáfræði, í þágu eigenda sinna, sem í kyrrþey hafa getað sölsað til sín ómæld verðmæti.

Þetta gamla kerfi er enn við völd og ætlar að halda þeim. Kryddsíldar þátturinn var einmitt gott dæmi þetta, að allt sé einsog áður, með dúklögðum borðum, bjór, síld og þjónustustúlkum, yfirborðskenndum spurningum og utanaðbókarlærðum svörum. Það á bara að velta kreppunni yfir á fólkið í landinu og halda svo áfram einsog ekkert hafi í skorist. Ballið heldur áfram undir snyrtilegu fasi yfirborðsmennskunnar. Allt sem ríkisstjórnin gerir lýsir svo vel hverjir hafa haldið um valdataumana, hverjir halda um valdataumana og hverjir ætla sér að halda um valdataumana. Íslenskur almenningur á að hreinsa upp eftir þetta lið í margar kynslóðir og það ætlar að halda áfram að stjórna okkur. Það er búið að skuldsetja okkur út á kaldan klaka, veðsetja okkur inn í framtíðina og þegar við mótmælum fáum við á okkur skrílsstimpil og jafnvel fabúleringar um klæðaburð frá utanríkisráðherranum. Það á ekki að bæta tjónið með því að sækja það til þeirra sem ollu því heldur á að velta því yfir á okkur, á almenning, enn einu sinni. Nú ætla forsöngvarar útfararinnar, sjálfur kirkjukórinn, að fara að stjórna endurreisninni. Þeir sem kveiktu í húsinu ætla að beina athyglinni að unglingnum sem hrækti á gangstéttina. Auðstéttin vill að öll andstaða sé brotin á bak aftur með lögreglukylfum og gasi en neitar sjálf að axla alla ábyrgð. Um leið og auðstéttin axlar sína ábyrgð, og ríkisstjórnin og eftirlitsstofnanir hennar, þá hætta þessi mótmæli sjálfkrafa. Ef Ari Edwald og Sigmundur Ernir segja yfirboðurum sínum að axla ábyrgð þá geta þeir hámað í sig eins mikla síld og þeir vilja. Lögreglan ætti frekar að taka upp kylfurnar og flengja ríkisstjórnina, auðstéttina og handlangara hennar á fjölmiðlunum. Ég held að lögregluþjónarnir eigi meiri samleið með okkur sem mótmælum en auðstéttinni sem líka hefur veðsett börnin þeirra.

Ríkisstjórnin ætlar ekki að fara í neitt uppgjör við auðstéttina, við hamfara kapítalistana, því þetta er ríkisstjórn frjálshyggjunnar, þetta er ríkisstjórn ríka fólksins. Við hin erum ekki þjóðin. Við vissum þetta ekki þegar við kusum þetta fólk. Þá talaði það bara um fagra Ísland. Þess vegna viljum við fá að kjósa upp á nýtt. Við þurfum að fá að vita hver staða okkar er, hvernig skuldir okkar eru tilkomnar, hvað þær eru miklar og hverjir eru ábyrgir fyrir þeim. Og hvað varð um alla peningana, þessar tuttugu milljónir sem hvert mannsbarn á landinu skuldar? Í hvað fóru þeir? Hinir ábyrgu eiga að sæta ábyrgð, en þeir verða ekki látnir sæta neinni ábyrgð. Forysta Sjálfstæðisflokksins vill ekki taka ábyrgð á þeim ógöngum sem hún hefur leitt þjóðina í. Hennar eina markmið er að endurreisa yfirstéttina, kannski með smá kennitölubreytingum, en stærsti glæpurinn er að til þessara óþurftarverka hefur Sjálfstæðisflokkurinn flokkinn sem jafnaðarfólkið kaus. Það eru til sjálfstæðir Sjálfstæðismenn, en þeir eru auðvitað gengnir úr Sjálfstæðiflokknum. Þetta snýst nefnilega ekki lengur um pólitíska flokka. Þess vegna þurfum við nýtt afl. Við þurfum öll að sameinast, jafnvel þó okkur greini á um einstaka mál.

Um ábyrgðina segir auðstéttin: Nei, ég gerði ekkert ólöglegt. Ég fór að lögum, og þetta éta stjórnmálamennirnir eftir þeim. Þetta er algengasta viðkvæðið: það var ekkert ólöglegt. Aðeins er rætt um ábyrgð í lagalegum skilningi, en Ari Edwald og félagar hans í Viðskiptaráði hafa afnumið öll lög. Ef fíkniefnalöggjöfin væri með sama sniði og löggjöfin sem þessir kumpánar fengu að sníða viskiptalífinu þá væri hægt að kaupa heróin úti í næstu sjoppu og ekki væri hægt að handsama einn einasta smyglara. Smyglarinn myndi bara segja: Það er frjáls innflutningur. Ég er ekki að gera neitt ólöglegt. Það er búið að losa um lagaumhverfið þannig í viðskiptalífinu að lagaleg ábyrgð er engin. Fjármálafurstarnir hafa verið einsog brennuvargar í boði stjórnvalda. Þessir menn fá að komast upp með allt. Stjórnvöld segja bara, ef eitthvað ólöglegt finnst. Auðvitað finnst ekkert ólöglegt því stjórnvöld hafa gert allt löglegt. En við segjum: Ábyrgðin er efnahagsleg. Áyrgðin er siðferðileg. Ábyrgðin er pólitísk. Eða þarf að grípa til landráðalaganna? Auðmennirnir verða að axla ábyrgð á því auðvaldsskipulagi sem var smíðað af þeim og fyrir þá af pólitískum handlöngurum þeirra. Röksemdir þeirra fyrir að fá að ráðskast með auðlindir þjóðarinnar og banka í eigu ríkisins var sú að þeir myndu axla alla ábyrgð. Þannig komu ofurlaunin til sögunnar. Þannig voru ofurlaunin réttlætt. Nú þegar grundvöllur þessa alls er hruninn á að velta skuldunum yfir á almenning og skuldirnar eru svo miklar að búið er að fjötra almenning í skuldafjötra í margar kynslóðir. Þeir sem komu okkur í skuldirnar eiga að borga þær. Það verður því annað hvort að breyta lögunum eða við tökum lögin í okkar hendur. Þess vegna viljum við fá að kjósa.

Það er smá ljós í myrkri Samfylkingarinnar. Séra Karl V. Matthíassons skrifar grein í gær. Hann segir: „Eitt það mikilvægasta sem við eigum að gera og getum gert á nýja árinu er að breyta lögum um stjórn fiskveiða. Breyta úthlutunarreglunum og afnema þann fáránleika að örfáir einstaklingar hafi full yfirráð yfir fiskistofnum þjóðarinnar.“ … Erum við sammála séra Karli? Já. Við þurfum að endurheimta fiskveiðiheimildarnar. Þá þarf að endurskoða skattakerfið, auðugt fólk og fyrirtæki hafa búið hér í skattaparadís. Þetta kerfi þarf að taka til gagngerrar endurskoðunar. Ríkisstjórnir undanfarinna ára hafa alltaf reynt að gera hátekjuskatt eins fíflalegan og hægt er, af því að þær hafi í raun verið á móti því að hátekjufólk borgi skatta. Við munum líka leggja fram lausnir á verðtryggingu og velfreðarmálum. Utanríkisþjónustuna, að ég tali nú ekki um utanríkisstefnuna, á líka að taka til gagngerrar endurskoðunar.

Þurfum við nýtt afl? Ég sé fyrir mér stórt bandalag sem rúmar okkur öll. Við sameinumst um þessar einföldu kröfur, sem varða grundvallaratriði, en erum sammála um að við erum ekki sammála um allt. En við þurfum að herða baráttuna, ekki láta fjölmiðla sundra okkur og stjórnvöld afvegaleiða í endalausum eltingaleik við aukaatriði. Við erum alla vega sammála um að hinir ábyrgu sæti ábyrgð og stjórnvöld leyfi okkur að kjósa. Séum við jafn vitlaus og þau telja okkur vera þá fá þau umboð sitt aftur. Að öðrum kosti verða breytingar, góðar breytingar.

Baráttan er hér og nú … Látum ekki skuldsetja okkur, börn okkar og barnabörn. Stöðvum innrás Alþjóðagjaldeyrissjósins. Hann er fulltrúi hamfarakapítalismans og frjálshyggjunnar. Spyrnum við fótum. Verum ICESAVE í hálkunni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 17 klukkutímum
Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Lilja vann og hvað svo? – Öldungaráðið stóð að baki henni

Orðið á götunni: Lilja vann og hvað svo? – Öldungaráðið stóð að baki henni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum