
Það er ágætt að sjá kínverska hópinn sem þvælist um heiminn með Ólympíukyndilinn hrekjast um og forðast helst staði þar sem fólk kemur saman. Haukur Már Helgason í San Fransisco lýsir þessu skemmtilega í máli og myndum.
Alþjóðlega Ólympíunefndin er búin að taka saman reglur fyrir íþróttafólk sem fer á leikana. Þar eru leiðbeiningar um hvað má segja og hvað má ekki segja í Peking.
Íslenskir stjórnmálamenn ætla sko að mæta á leikana. Þorgerður Katrín segist ætla að vera á opnunarhátíðinni, en Ólafur Ragnar vill ekki segja neitt um áform sín fyrr en víst er hvort hann verður endurkjörinn forseti. Það er er eðlilegt að gæta þess formsatriðis.
En einhvern veginn er maður alveg viss um að hann muni hugsa sér til hreyfings.