
Vinstri grænir eru með níu manna þingflokk. Samkvæmt vef Alþingis eru fjórir þessara þingmanna fjarverandi og hafa kallað inn varamenn.
Spurning er hvort þetta sé nauðsyn – hvort þingflokkur VG sé í aðra röndina einhvers konar æfingabúðir eða hvort prinsípp flokksins á þingi sé að allir eigi að fá að vera með?
Annars er maður í mestu vandræðum með að ná í stjórnmálamenn í þátt eins og Silfur Egils vegna þess hversu mikið þeir eru á faraldsfæti í útlöndum.