
Obba skrifar um fjarstýringar. Það kemur efni pistils hennar ekkert við en á mínu heimili er þessi hlutur aldrei kallaður annað en fjarmi.
„Ertu með fjarmann? Réttu mér fjarmann.“
Fyrst byrjaði þetta sjálfsagt í gríni, en nú er hefur þetta ágæta orð tekið yfir.
Þetta minnir mig annars á það að Bjarni Þórarinsson myndlistarmaður vildi nota orðið ökvi yfir bensín.
Það hefur ekki enn unnið sér þegnrétt í málinu.