
Það er afskaplega skrítinn hópur stjórnmálamanna sem skipar borgarstjórnina í Reykjavík.
Jú, stjórnmál eru list hins mögulega, en það er líka hægt að gera svo mikið af málamiðlunum að maður veit ekki lengur hver maður er.
Þetta einkenndi borgarpólitíkina á tíma R-listans og gerir enn. Þá er ég að tala um fulltrúa allra flokka. Nema kannski helst Ólaf F. Magnússon sem í krafti sinna örfáu atkvæða virðist geta fengið allt sem hann vill.
Nú samþykkja borgarfulltrúar í öllum flokkum að risastór samgöngumiðstöð verði byggð við Reykjavíkurflugvöll. Þetta gengur þvert á yfirlýsingar þeirra flestallra um að flugvöllurinn eigi að fara.
Aðspurð segja þau að samgöngumiðstöðin muni nýtast þegar flugvöllurinn fer. Það verði semsagt hægt að nota húsið í annað.
Allir sem hafa eitthvert smávit á skipulagsmálum sjá að þetta er heldur enginn samgöngumiðstöð. Það er móðgun að kalla bygginguna því nafni. Þetta er stór og sjálfsagt glæsileg flugstöð.
Staðreyndin er auðvitað sú að þegar samgöngumiðstöðin rís er búið að festa flugvöllinn í sessi. Hann fer ekki næstu áratugina. Sú barátta tapast einfaldlega.
En borgarfulltrúarnir hafa hvorki kraft né þor að standa fyrir sannfæringu sinni; þau eru orðin svo rugluð af valdapólitík og spuna að þau þekkja ekki staðreyndir þótt þær detti ofan á hausinn á þeim.