
Jón Ásgeir segir að ástandið á gjaldeyrismarkaði hér sé stórhættulegt og nauðsynlegt sé að grípa til aðgerða innan tveggja daga.
Davíð segir að bankarnir geti bjargað sér sjálfir.
Hagfræðingurinn Ársæll Valfells segir að Seðlabankinn starfi á gengismarkmiðum fremur en verðbólgumarkmiðum. Það þýðir að hann er að reyna að hafa áhrif á gengi krónunnar, afla gjaldeyris með háum vöxtum. Samt lækkaði gengi krónunnar við vaxtahækkunina í dag.
Nú eru hæstu vextir á byggðu bóli hér á Íslandi. Við höfum fengið tuttugu og fimm vaxtahækkanir í röð. Það hefur ekki skilað miklu og segir sitt um hversu efnahagsstjórnin hefur verið léleg.
Seðlabankinn spáir því að verð á húsnæði lækki um 30 prósent. Það gæti orðið erfitt fyrir marga sem keyptu húsnæði á dýrum lánum.
Hallur Magnússon vill að Íbúðalánasjóður verði notaður til að koma lífi í húsnæðismarkaðinn. Hugmyndir hans eru um margt athyglisverðar.