fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Eyjan

Koberling og frábær bókabúð í Kiljunni

Egill Helgason
Miðvikudaginn 9. apríl 2008 11:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

koberling02.jpg

Í Kiljunni í kvöld verður fjallað um Bernd Koberling, þýskan málara sem hefur komið til Íslands í þrjátíu ár, dvelur yfirleitt austur í hinum eyðilega Loðmundarfirði, og sýslar meðal annars við að myndskreyta bækur eftir íslenska höfunda sem eru prentaðar í glæsilegum útgáfum í Þýskalandi: Snorra Hjartarson, Baldur Óskarsson, Sjón og Gyrði Elíasson.

Hann á sér þann draum að koma Þórbergi Þórðarsyni út í Þýskalandi.

Við heimsækjum skemmtilegustu bókabúð á Íslandi, hún er á Selfossi og er í eigu Elínar Gunnlaugsdóttur og Bjarna Harðarsonar. Þetta er í senn bókaverslun, fornbókabúð, bókakaffi, menningarmiðstöð og setur þjóðlegs fróðleiks.

Einnig fjöllum við um bókaútgefandann Ólaf Ragnarsson sem dó fyrir stuttu. Ólafur var dyggur forleggjari Halldórs Laxness en kom líka höfundum eins og Ólafi Jóhanni Ólafssyni og Arnaldi Indriðasyni á framfæri.

Páll og Kolbrún og Bragi eru á sínum stað í þættinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 14 klukkutímum
Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Lilja vann og hvað svo? – Öldungaráðið stóð að baki henni

Orðið á götunni: Lilja vann og hvað svo? – Öldungaráðið stóð að baki henni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum