fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Ónefndi maðurinn, sáttmáli Framtíðarlandsins, rauðljósahverfi

Egill Helgason
Þriðjudaginn 20. mars 2007 13:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hví má ekki segja nafn ónefnda mannsins í Baugsmálinu? Hvers vegna má ekki nefna hann? Hvaða launhelgar eru hér á ferðinni? Á þetta sér eðlilega skýringu eða er þetta eitthvað í anda júdaisma þar sem Guð hefur ýmis nöfn sem birta ólíkar hliðar hans, en sum eru svo heilög að ekki má segja þau upphátt?

Styrmir og Kjartan vita sjálfsagt að allir vita hver ónefndi maðurinn er. En nafn hans má ekki segja opinberlega.

— — —

Í 48. grein stjórnarskrárinnar stendur að alþingismenn séu eingöngu bundnir af sannfæringu sinni en ekki við neinar reglur frá kjósendum sínum. Vegna þessa er maður pínulítið hugsi yfir svokölluðum sáttmála um framtíð Íslands sem Framtíðarlandið er að þröngva þingmönnum til að skrifa undir.

Ég verð að segja eins og er að ég ber meiri virðingu fyrir þeim þingmanni sem tjáir sjálfstæða skoðun á stóriðjumálum, virkjunum og orkunýtingu og rökstyður hana vel – hver sem hún kann svo að vera – en sem lætur reka sig eins og rollu í rétt að skrifa undir svona sáttmála.

Alveg burtséð frá því hvað stendur í sáttmálanum eða hversu góður hann kann að vera.

— — —

Samkvæmt nýju frumvarpi virðist vændi vera orðið löglegt á Íslandi. Altént er ekki refsivert að selja það, hafa af því framfærslu, þótt þriðji aðili megi ekki hagnast á því og ekki megi auglýsa það. En það má ekki heldur auglýsa áfengi.

Og það er heldur ekki bannað að kaupa það – sænska leiðin svokölluð fékk ekki brautargengi í þinginu. Samkvæmt Atla Gíslasyni, lögmanni og femínista, er ekkert því til fyrirstöðu að hér verði til rauðljósahverfi.

Aðalröksemdin í þessu er að ekki sé rétt að refsa þeim sem stunda vændi. Orðalagið er reyndar yfirleitt"að leiðast út í vændi". Það er staðhæft að þeir sem leggi fyrir sig vændi geri það út úr neyð. Og vissulega er það svo í mörgum tilvikum.Dópistar selja sig til að fjármagna fíkn sína og þeir stela líka og svíkja. Ég ætla ekki að taka undir sögusögnina um hamingjusömu hóruna. En hvað með þann sem telur sig hafa betra upp úr vændi en til dæmis að vinna við skúringar eða í fiski.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki