fbpx
Föstudagur 19.desember 2025

Hollywood-stjörnur sem byrjuðu í klámi

Tobba Marinósdóttir
Föstudaginn 10. júlí 2020 20:00

Þessar stórstjörnur byrjuðu í erótískum kvikmyndum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki gefið að leikarar verði frægir. Það tekur tíma, hæfileika og mikla heppni. Sumar stjörnur þráðu frægðina það heitt að þær tóku sín fyrstu skref í skemmtanabransanum í klámi.

 

SYLVESTER STALLONE
Ítalski sjarmörinn Sylvester Stallone skaust upp á stjörnuhimininn þegar hann lék í klámmyndinni The Party at Kitty and Stud’s. Í kjölfarið fékk hann aukahlutverk í myndinni Downhill Racer. Ári seinna fékk hann sitt fyrsta aðalhlutverk og varð stuttu seinna heimsfrægur fyrir hlutverk sitt í Rocky.

Er þetta góð hugmynd ?

 

ARNOLD SCHWARZENEGGER
Löngu áður en hann lék í Terminator, eða varð ríkisstjóri Kaliforníu, sat Arnold Schwarzenegger fyrir í nokkrum hommaklámtímaritum þegar hann var að reyna að meika það í Hollywood, eða svo segja sögusagnirnar.

 

PERREY REEVES
Perrey Reeves er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt sem Mrs. Gold, eiginkona Ari Gold í þáttaröðinni vinsælu Entourage. Færri vita af ferli hennar sem klámstjörnu. Hún kom fram í klámmyndum fyrir Pornhub, XVideos og HD Porn.

Perrey Reeves

 

JACKIE CHAN
Leikarinn lék í kínverskri grín klámmynd árið 1975, „All in the Family“. Eftir að hann fékk sitt fyrsta stórhlutverk árið 1978 í myndinni „Snake in the Eagle‘s Shadow“ sagði hann skilið við klám.

 

DAVID DUCHOVNY
Matt LeBlanc er ekki sá eini til að leika í klámseríunni The Red Shoe Diaries. David Duchovny lék í einum þætti þegar hann var að reyna að meika það í Hollywood. David sló seinna í gegn í X-Files og Californication.

 

CAMERON DIAZ
Cameron Diaz er vel þekkt í Hollywood og hefur leikið í stórmyndum á borð við There’s Something about Mary og The Holiday. Þegar hún var nítján ára gömul sat hún fyrir í BDSM-myndatöku ásamt tveimur öðrum fyrirsætum. Myndatakan var tekin upp á myndband og eftir að leikkonan sló í gegn í Hollywood seldi ljósmyndarinn rússnesku klámfyrirtæki myndbandið. Við tók barátta á milli lögfræðinga Cameron Diaz og ljósmyndarans.

 

MATT LEBLANC
Áður en Matt LeBlanc sló í gegn sem Joey Tribbiani í Friends vann hann ýmis störf. Hann lék í ljósbláu klámþáttunum Red Shoe Diaries á tíunda áratugnum. Hann var heldur blankur áður en hann nældi sér í hlutverkið í Friends. Þegar síðasta þáttaröðin fór í loftið fékk hann um 138 milljónir króna fyrir hvern þátt.

 

HELEN MIRREN
Helen Mirren tók sín fyrstu skref í kvikmyndabransanum þegar hún lék í klámmyndinni Caligula. Henni til varnar vissi hún ekki að þetta væri klámmynd. Leikstjórinn bætti við kynlífsatriðunum án hennar vitundar. Síðan hefur hún fengið ótal hlutverk í vinsælum bíómyndum og er ein virtasta leikkonan í Hollywood.

Helen Mirren

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Messi og Yamal mætast í fyrsta sinn

Messi og Yamal mætast í fyrsta sinn
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Súlunesmálið: Afi Margrétar sagði föður hennar hafa setið til borðs með ullarhúfu á höfðinu til að leyna áverkum

Súlunesmálið: Afi Margrétar sagði föður hennar hafa setið til borðs með ullarhúfu á höfðinu til að leyna áverkum
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Sagðir vilja losna við Danann af launaskrá – Áhugi frá Englandi og Sádí

Sagðir vilja losna við Danann af launaskrá – Áhugi frá Englandi og Sádí
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Hlógu þegar þeir óku viljandi aftan á reiðhjólamann – Dæmdir í vikunni og hlógu ekki þá

Hlógu þegar þeir óku viljandi aftan á reiðhjólamann – Dæmdir í vikunni og hlógu ekki þá
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Súlunesmálið: Hesthússeigandi ber Margréti illa söguna – „Gömlu hjónin voru eins og þrælar“

Súlunesmálið: Hesthússeigandi ber Margréti illa söguna – „Gömlu hjónin voru eins og þrælar“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Age Hareide er látinn

Age Hareide er látinn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.