fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Fyrrum starfsmaður Ellen DeGeneres segir að „orðrómurinn sé sannur“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 13. maí 2020 10:30

Ellen DeGeneres.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ellen DeGeneres hefur sætt harðri gagnrýni undanfarnar vikur eftir að samfélagsmiðlastjarnan Nikkie de Jager opnaði sig um upplifun sína í þætti Ellen. Í kjölfarið hafa komið fram margar sögur um starfshætti hennar og karakter á Twitter.

Sjá einnig: Opnar sig frekar um hræðilega upplifun hjá Ellen DeGeneres – Mátti ekki nota klósettið

Þetta byrjaði á því að grínistinn Kevin T. Porter bað netverja á Twitter um sögur þeirra af Ellen Degeneres.

Viðbrögðin létu ekki á sér standa og fór fjöldi fyrri starfsmanna Ellen ófögrum orðum um stjörnuna. Þeir sögðu meðal annars að Ellen sé mjög viðkvæm fyrir vondri lykt og sé alltaf með skál af tyggjói fyrir utan skrifstofuna. Ef fólk vill tala við hana þarf það að fá sér tyggjó úr skálinni.

Þjónustufólk sem hefur afgreitt hana steig einnig fram á Twitter og sagði hana níska og dónalega. Rúmlega 2200 manns hafa skrifað við færsluna.

Nú hefur fyrrum samstarfsmaður Ellen stigið fram og sagt að orðrómurinn sé sannur, Ellen er ekki eins vingjarnleg og hún vill að fólk haldi. New York Post greinir frá.

„Allar sögurnar eru sannar! Er hún alltaf vingjarnleg? Nei. Það pirrar mig að fólk haldi að hún sé alltaf svo yndisleg,“ segir heimildarmaður New York Post.

Ummæli um COVID

Síðustu mánuðir hafa verið ansi strembnir fyrir Ellen. Í apríl var hún harðlega gagnrýnd fyrir ummæli sem hún lét falla um COVID-19. Hún sagði að það væri „eins og að vera í fangelsi“ að vera í sóttkví.

„Ég segi þetta aðallega þar sem ég er búin að klæðast sömu fötunum í tíu daga samfleytt og allir hérna inni eru samkynhneigðir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
EyjanFastir pennar
Fyrir 15 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Til hvers að læra tungumál?

Björn Jón skrifar: Til hvers að læra tungumál?
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.