Kærasti eyddi næstum heilum mánuði í að biðja kærustu sinnar, en hann gerði það í laumi.
Edi Okoro, 30 ára, keypti demantshring fyrr á þessu ári í þeim tilgangi að biðja kærustu sína, Cally Read, um að giftast sér. Hins vegar ákvað hann að hann vildi gera eitthvað aðeins meira spennandi en að fara bara á skeljarnar.
Edi tók fullt af myndum af honum sjálfum með hringinn, nálægt framtíðar unnustu sinni, og vildi athuga hvort hún tæki eftir honum. Sem hún gerði ekki þannig hann endaði með að biðja hana formlega og hún sagði já.
„Þeir sem hafa gengið í gegnum þetta vita að þú vilt biðja manneskjunnar á þá vegu að það á við þig sem persónu og ykkur sem par. Sumir skipuleggja dansatriði (e. flash mob), fína máltíð eða jafnvel gera skilti,“ segir hann við Mail Online.
„Ég tók hringinn með mér út um allt og vonaði að „augnablikið“ myndi spontant koma. Eftir mánuð eða svo að bíða eftir rétta augnablikinu þá sat ég í sófanum að dást að „minni dásemd,“ já ég var orðinn mjög tengdur hringnum á þessum tíma,“ segir Edi.
„Hún tók næstum því eftir hringnum í eitt skiptið og þá datt mér það í hug – hún veit ekki að ég er með hringinn, ég ætti að taka myndir af þessum augnablikum.“
Þá byrjaði hann að taka myndir af sér með hringinn nálægt henni, og með hverri myndinni varð hann djarfari. Eitt skiptið var hún sofandi og hann setti hringinn í lófa hennar og tók mynd.
En loksins kom að stóra augnablikinu og hann fór á skeljarnar og hún sagði já. Hann vill samt ekki segja frá því hvernig það fór fram.
Til hamingju!