fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Maríanna greindist með sjaldgæfan meðgöngukvilla sem tók yfir líf hennar: „Mikilvægt að konur viti af því að þetta sé til“

Aníta Estíva Harðardóttir
Laugardaginn 6. júlí 2019 21:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maríanna Magnúsdóttir er 31 árs gömul og gengur hún með sitt fyrsta barn. Þegar Maríanna komst að því að hún væri barnshafandi voru það mikil gleðitíðindi, enda bæði fyrsta barn hennar og fyrsta barnabarn foreldra hennar en faðir Maríönnu er aflraunamaðurinn Magnús Ver.

Stuttu eftir að Maríanna vissi af þunguninni fór hún að upplifa mikla ógleði og uppköst sem hún taldi eðlileg í fyrstu. Fljótlega kom þó í ljós að ekki var allt með felldu og áður en Maríanna vissi af var hún lögð inn á spítala.

Tók yfir líf hennar

„Ég er með það sem kallað er Hyperemesis gravidarum, eða HG. Það lýsir sér sem meðgöngukvilla sem einkennist af massífum uppköstum, ofþornun, ógleði, svima og þyngdartapi. Þetta er alvarlegra en venjuleg morgunógleði þar sem þetta tekur yfir líf þitt algjörlega. HG á að skána í kringum sextándu til tuttugustu viku en er oft alla meðgönguna, sem betur fer eru ekki margar konur sem fá þetta en mér finnst samt mikilvægt að konur viti af því að þetta sé til,“ segir Maríanna.

Maríanna starfar sjálf sem hjúkrunarfræðingur á gjörgæslu Landspítalans og er hún iðin við að ferðast og þjálfa hundana sína tvo. Segist hún sjaldan fara auðveldu leiðina í lífinu og finnst henni gott að ögra sjálfri sér reglulega. Það hefur því tekið gríðarlega á hana að vera upp á fjölskyldu sína komna meira og minna alla meðgönguna.

„Ég hef verið með gríðarleg uppköst og mikla ógleði sem olli því að ég var á tveggja til þriggja daga fresti uppi á göngudeild mæðraverndar að fá vökva í æð. Eftir tíu ferðir á spítalann, þar sem mér voru gefnir tveir til fimm lítrar af vökva í æð í hvert skipti, var ákveðið að leggja mig inn til þess að reyna að stilla þetta af. Ég hélt engu niðri á þessu tímabili heldur kom allt upp, meira að segja hver sopi af vatni. Vanlíðanin sem fylgir því að vera alltaf óglatt og þar af leiðandi alltaf svöng er ekki góð. Þú einangrast rosalega þar sem þú kemst ekkert út úr húsi, þú verður það máttlítil að það að færa þig úr rúmi yfir í sófann verður erfitt og það þarf að skipuleggja sturtuferðir svo það líði ekki yfir þig. Því lenti öll vinnan við heimilið, hugsa um hundana og mig á fjölskyldunni minni og einna helst á kærastanum mínum. Það var ekki auðvelt fyrir mig að vera svona upp á aðra komin en ég hafði ekkert val.“

Ekki eins og hver önnur morgunógleði

Maríanna hóf að kasta upp í enda febrúar á þessu ári og var hún komin í veikindaleyfi frá vinnu í byrjun mars. Hún er loksins að komast aftur til starfa í júlí, en hún er gengin rúmlega 24 vikur.

„Ég er ekki eins slæm og ég var en ógleðin er enn þá til staðar. Ég þarf að passa mig að borða reglulega og drekka nóg til þess að ég lendi ekki á sama stað. Ég er enn á ógleðislyfjum en er að vinna í því að taka þau út. Ég þarf svo að fara í vaxtarsónar þar sem sterarnir sem ég þurfti að vera á geta haft áhrif á vöxt fóstursins og ég hef einnig verið í auknu mæðraeftirliti síðan ég útskrifaðist af spítalanum.“

Maríanna lá í heildina í þrjár vikur inni á spítala og ráðleggur hún konum sem gruna að þær kynnu að hafa HG að tala strax við ljósmóður sína.

„Það dugar oft að grípa inn í með vökvagjöf og þá þarf ekki meira inngrip en það, en þessi veikindi eru ekki eins og hver önnur morgunógleði. Ég var orðin það næringarlaus og þurr að það var lítið annað í stöðunni en að setja í mig stóran æðalegg í hálsinn til þess að gefa mér næringu, stera og lyf í æð. Ég var búin að léttast um 12 kíló og var komin með brenglun á söltunum í líkamanum vegna langvarandi næringar- og vökvaleysis. Það náðist sem betur fer að hressa mig við og koma næringarstandinu í ásættanlegan farveg og ég er þeim sem sinntu mér ævinlega þakklát.“

Maríanna Magnúsdóttir / „Ég hef alltaf verið hundasjúk, alveg frá því að ég var lítil“ / Mynd: Eyþór Árnason

Lifir fyrir hundana sína

Settur fæðingardagur er 24. október og segir Maríanna fjölskylduna vera mjög spennta og að allir hlakki til við að takast á við ný hlutverk. Í dag er líðan hennar orðin betri en hún er þó að jafna sig og er orka hennar og þol takmarkað.

Síðan Maríanna man eftir sér hefur hún alltaf haft mikinn áhuga á hundum og þegar hún var nítján ára gömul létu foreldrar hennar loksins undan og gáfu henni tíkina Töru sem er af tegundinni Silky Terrier. Maríanna hefur síðan þá verið dugleg að þjálfa Töru og verið með hana á sýningum þar sem henni hefur gengið mjög vel og er hún stór partur af lífi Maríönnu. Eftir að Maríanna veiktist hefur hún þurft að reiða sig á aðstoð við umönnun hundanna en segist ekki geta beðið eftir því að geta haldið áfram að þjálfa þær eftir að meðgöngu lýkur.

„Ég hef alltaf verið hundasjúk, alveg frá því að ég var lítil og núna á ég tvær Silky Terrier-skvísur, þær Töru Dúllu og Teslu. Það tekur jú gríðarlegan tíma og vinnu í að þjálfa þær en mér finnst sú vinna mjög skemmtileg. Ég lifi fyrir hundana mína og að þjálfa þær og æfa finnst mér stór hluti af okkar sambandi.“

7 hlutir sem þú vissir ekki um HG (Hyperemesis Gravidarum)

  • Einkennin eru ekki „bara“ slæm morgunógleði

Talið er að í kringum 85% kvenna upplifi morgunógleði á meðgöngu en aðeins 2% kvenna fái HG.

  • Þú ert ekki að framkalla einkennin

HG kemur vegna meðgönguhormónsins HCG og það er ekkert í hegðun kvenna sem orsakar veikindin. Hins vegar er góður svefn og næg drykkja eitthvað sem getur hjálpað til við vanlíðanina.

  • Lyf geta hjálpað

Þrátt fyrir að HG hafi ekki verið rannsakað lengi hafa læknar fundið nokkur lyf sem hjálpa konum.

  • Litlar líkur eru á því að barnið þitt sé í hættu

Þegar konur verða svona veikar á meðgöngu hafa læknarnir mestar áhyggjur af vökvaskorti og ójafnvægi á söltum í líkama þeirra. Fóstrið tekur þá næringu sem það þarf og aðaláhersla lækna er að koma móðurinni í gott jafnvægi. Aðlögunarhæfni fóstursins er ótrúleg og eru þau snillingar í því að taka allt það sem þau þurfa til þess að vaxa. Það er þó alltaf ráðlagt að hitta lækni ef verðandi móðir nær hvorki að halda mat né vatni niðri í marga klukkutíma í senn.

  • Að borða minna mun ekki hjálpa til við ógleðina

Þegar kona þjáist af HG er líklegra að hún kasti upp þjáist hún af vökvaskorti. Það er því mikilvægt að nærast og í mörgum tilfellum þurfa konur vökva í æð til þess að slá á ógleði og uppköst.

  • HG getur verið gott þegar kemur að hormónum – fóstursins vegna

Konur sem fá HG eru ekki í meiri áhættuhóp við að missa fóstur þar sem ástæða þess er oft talin vera vegna mikilla HCG hormóna. Ef kona með HG nær hins vegar ekki að halda niðri vökva og næringu en fær ekki þá aðstoð sem hún þarf getur hún verið í áhættu. Sé henni ekki sinnt á réttan hátt getur hún orðið fyrir bein- og vöðvarýrnun og átt á hættu að ofþorna sem getur leitt til dauða.

  • Ekki allar konur fá HG á öllum meðgöngunum

Einungis helmingur kvenna sem greinist með HG á fyrstu meðgöngu upplifa þær á seinni meðgöngum.

5 frægar sem hafa fengið HG

Kate Middleton (Catherine, Duchess of Cambridge) – Kate veiktist alvarlega af HG á öllum sínum meðgöngum.
Amy Shumer – Amy eignaðist sitt fyrsta barn í apríl á þessu ári. Þurfti hún að aflýsa mörgum uppistöndum vegna veikindanna og hefur hún talað mjög opinskátt um þau á samfélagsmiðlum.
Kelly Clarkson – Kelly þurfti reglulega að leggjast inn á spítala með næringu í æð.
Kim Kardashian – Kim glímdi við margs konar meðgöngukvilla, meðal annars HG.
Debra Messing – Debra lá uppi í rúmi nánast alla meðgönguna með næringu í æð.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“
Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum
Hartman í Val
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast