Það syttist í að vorið fari að skella á og er ég orðin alveg hræðilega spennt fyrir að veturinn og kuldinn láti sig hverfa.
Ég útbjó lista af verkum sem ég mun gera og ætla svo að nota app sem heitir Tasks til að skrá þau niður og strika yfir þegar verkið er búið.
Ég tel ekki upp það sem ég geri á hverjum degi eða reglulega en það verður gert í lokin bara (ryksuga, skúra, klósettþrif og þetta basic)
En allavega, mig langaði að deila þessu með ykkur þrifaperrum svo værsgo!
Taka af sófa og setja í vél
Taka af púðum og henda í vél ásamt teppum
Taka alla skrauthluti af hillum og þrífa bæði hillurnar og hlutina
Taka sófa frá vegg og skúra
Taka gólfmottu út og lofta
Þrífa glugga
Þrífa ofna
Taka allt úr skápum og þrífa skápa, fara svo yfir allt og henda sem þarf að henda
Þrífa ofan á efri eldhússkápunum
Taka ísskáp frá og þrífa bakvið
Þrífa bakaraofn
Þrífa örbylgjuofn
Þrífa veggi
Skrúbba gólfflísar
Þrífa glugga
Henda koddum í vél
Fara með sængur út til að lofta
Þrífa dýnur og snúa þeim við
Þrífa glugga
Taka allt úr skápum og þrífa skápa
Fara í gegnum öll föt og losa við það sem er ekki í notkun
Færa rúmin frá og þrífa vel undir
Taka af hillum og þrífa hillur og hluti
Þrífa ofna
Skrúbba gólfflísar
Þrífa veggi
Taka allt úr skápum og þrífa
Fara í gegnum allt og henda sem þarf
Þrífa ofna
Skrúbba flísar
Taka allt úr skápum og þrífa
Fara yfir skó og útifatnað og losa við það sem er ekki í notkun
Þrífa sjáanlega bletti á veggjum
Þrífa útihurð báðum megin
Ryksuga vel alla lista og þrífa
Setja plöntur í sturtu og skipta um mold
Og þar höfum við það! Nú er bara að finna tíma á milli vinnu og skóla til að gera þetta!