fbpx
Laugardagur 27.desember 2025

Miley Cyrus í kossaflensi með nýrri dömu á Ítalíu

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 12. ágúst 2019 10:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miley Cyrus og Kaitlynn Carter hafa verið að njóta lífsins á Ítalíu síðustu daga. Fjölmiðlar vestanhafs hafa birt myndir af þeim kyssast og faðmast á bát þar sem þær sigldu yfir Como-vatn á Ítalíu.

Það eru aðeins örfáir dagar síðan People greindi frá skilnaði Miley og Liam Hemsworth eftir tíu mánðaa hjónaband.

Í kjölfarið gaf talsmaður Miley út yfirlýsingu þar sem orðrómurinn var staðfestur.

„Þau eru í stöðugri þróun, bæði sem par og sem einstaklingar. Þau hafa ákveðið að þetta sé best fyrir þau bæði á meðan þau einbeita sér að framanum og sjálfum sér. Þau munu hugsa um öll dýrin sín í sitthvoru lagi á meðan þau eru aðskilin,“ stóð í yfirlýsingunni.

Síðustu daga hefur Miley verið að ferðast um Ítalíu. Hún hefur verið að ferðast með Kaitlynn Carter, fyrrverandi unnustu Brody Jenner og tengdadóttur Caitlynn Jenner.

Þær hafa báðar deilt myndum úr fríinu.

https://www.instagram.com/p/B09DWxfg1xO/

https://www.instagram.com/p/B09Z3ShgaK7/

https://www.instagram.com/p/B0_EtRxJS6G/

En Miley og Kaitlynn eru ekki aðeins vinkonur á ferðalagi. Hugsanlega er um nýtt stjörnupar að ræða, eða þær séu bara að njóta lífsins og augnabliksins. Sjáðu myndirnar hér að neðan.

Myndir: BACKGRID
Myndir: BACKGRID
Myndir: BACKGRID
Myndir: BACKGRID
Myndir: BACKGRID
Myndir: BACKGRID
Myndir: BACKGRID

Miley hefur verið mjög opin um kynhneigð sína og segist vera er pankynhneigð. Sem þýðir að hún laðast ekki að einhverju ákveðnu kyni heldur persónuleika einstaklingsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 14 klukkutímum

Guðrún Karls Helgudóttir: Ótrúlegt hvað stórfelldar breytingar á Þjóðkirkjunni frá 2019 hafa farið lágt

Guðrún Karls Helgudóttir: Ótrúlegt hvað stórfelldar breytingar á Þjóðkirkjunni frá 2019 hafa farið lágt
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Valdi Stielike í draumaliðið en ekki Ronaldo

Valdi Stielike í draumaliðið en ekki Ronaldo
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Segir það sama og á síðustu leiktíð – Ekki að berjast um titilinn

Segir það sama og á síðustu leiktíð – Ekki að berjast um titilinn
Fókus
Fyrir 18 klukkutímum

Áramótaspá Ellýjar fyrir Valkyrjurnar: „Við erum að fara í svakalegar breytingar þegar kemur að stjórnmálum“

Áramótaspá Ellýjar fyrir Valkyrjurnar: „Við erum að fara í svakalegar breytingar þegar kemur að stjórnmálum“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Horfðu á Áramótabombu Íþróttavikunnar – Kristján Óli fer um víðan völl

Horfðu á Áramótabombu Íþróttavikunnar – Kristján Óli fer um víðan völl
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Varpa ljósi á óhugnanlegan spádóm Nostradamusar fyrir árið 2026

Varpa ljósi á óhugnanlegan spádóm Nostradamusar fyrir árið 2026

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.