fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Eyjan

Fyrrum aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar ráðinn til Símans

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 20. mars 2025 12:10

Hersir Aron Ólafsson. Mynd/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hersir Aron Ólafsson og Steindór Emil Sigurðsson hafa verið ráðnir til Símans. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu en þar kemur fram að Hersir muni taka til starfa sem forstöðumaður samskipta og fjárfestatengsla. Auk þess verður hann aðstoðarmaður forstjóra og mun vinna með framkvæmdastjórn að innleiðingu nýrrar stefnu félagsins ásamt áframhaldandi þróun og vexti.

Steindór mun taka við starfi forstöðumanns viðskiptaþróunar og vörustýringar á fyrirtækjamarkaði og mun þar leiða uppbyggingu fyrirtækjalausna Símans. Deildin er ný innan félagsins, í samræmi við áherslu á að fjölga og bæta enn frekar framboð stafrænna lausna til fyrirtækja.

Hersir er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Undanfarin ár hefur hann starfað sem aðstoðarmaður Bjarna Benediktssoonar, forsætis-, utanríkis- og fjármálaráðherra. Áður starfaði Hersir meðal annars sem lögfræðingur Ölmu íbúðafélags, hjá LOGOS lögmannsþjónustu og sem fréttamaður og þáttastjórnandi á Stöð 2 og mbl.is.

Steindór Emil Sigurðsson

Steindór er með M.Sc. gráðu í verkfræði frá DTU í Danmörku og hefur 25 ára reynslu af sérfræði- og stjórnunarstörfum innan nýsköpunar og vöruþróunar. Steindór kemur frá Controlant þar sem hann var lengst af í hlutverki forstöðumanns þróunar, en áður starfaði hann hjá Marorku, Símanum, Industria og Nokia.

Í fréttatilkynningunni kemur enn fremur fram að Síminn sé í mikilli sókn um þessar mundir, en í fyrra var meðal annars gengið frá kaupum á Billboard, Noona Iceland og lánasafni Valitor. Líkt og fram kom í nýlega birtum ársreikningi fyrir 2024 jukust tekjur Símans um ríflega 8% frá liðnu ári og EBITDA um rúmlega 16%. Enn frekari áhersla verður lögð á vöru- og viðskiptaþróun í rekstri Símans á komandi misserum, bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Bandaríkin lyfta löngutöng

Sigmundur Ernir skrifar: Bandaríkin lyfta löngutöng
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Séra Örn Bárður Jónsson: Var með doða í öðru heilahvelinu eftir námið

Séra Örn Bárður Jónsson: Var með doða í öðru heilahvelinu eftir námið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Skrímsladeildin stýrir nú Sjálfstæðisflokknum með hjálp önugra gamlingja

Orðið á götunni: Skrímsladeildin stýrir nú Sjálfstæðisflokknum með hjálp önugra gamlingja
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Hnýtir í Sigríði Andersen og spyr hvort hún sé viljandi að misskilja eða vísvitandi að blekkja

Hnýtir í Sigríði Andersen og spyr hvort hún sé viljandi að misskilja eða vísvitandi að blekkja
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigvaldi Einarsson skrifar: Krónan er fallin í stríðinu – Við eigum engan annan leik en ESB

Sigvaldi Einarsson skrifar: Krónan er fallin í stríðinu – Við eigum engan annan leik en ESB