fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Pressan

Tíu ára drengur lést eftir að fósturmóðir hans settist ofan á hann

Pressan
Mánudaginn 10. mars 2025 11:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona er í haldi lögreglunnar í Berrien-sýslu í Michigan vegna gruns um að hafa orðið tíu ára fóstursyni sínum að bana.

Konan sem um ræðir, Jennifer Wilson, er sögð hafa viljað refsa drengnum, Dakota Stevens, eftir að hann hagaði sér illa. Hafði hann ekki skilað sér heim dag einn fyrir skemmstu og fann Jennifer hann heima hjá nágrönnum þeirra.

Í frétt New York Post kemur fram að Dakota hafi kastað sér í grasið fyrir framan heimili fjölskyldunnar eftir að hún náði í hann til nágrannanna og hún brugðist við með því að setjast ofan á hann.

Er drengurinn sagður hafa öskrað og beðið hana að fara af sér sem hún gerði ekki. Ekki löngu síðar hætti drengurinn að hreyfa sig og sagðist Jennifer hafa talið að hann væri að þykjast vera meiddur. Þegar hún fór ofan á honum sá hún sér til skelfilegar að hann var meðvitundarlaus og hættur að anda.

Í frétt New York Post kemur fram að drengurinn hafi ekki átt mikla von gegn stjúpmóður sinni sem er rúm 150 kíló, en sjálfur vó drengurinn rúm 40 kíló.

Dakota var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést tveimur dögum síðar, en atvikið átti sér stað aðeins mánuði eftir að Jennifer fékk drenginn í sína umsjá. Hún á yfir höfði sér sex ára fangelsi vegna málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Rifja upp leikfangaeign Barron Trump eftir umdeild ummæli Bandaríkjaforseta

Rifja upp leikfangaeign Barron Trump eftir umdeild ummæli Bandaríkjaforseta
Pressan
Í gær

Leynilegar njósnaaðgerðir sýna hvernig Bandaríkin eru þegar farin að undirbúa innlimun Grænlands

Leynilegar njósnaaðgerðir sýna hvernig Bandaríkin eru þegar farin að undirbúa innlimun Grænlands
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Uppnám fyrir utan heimili Eddie Hall – „Ég ríf af þér hausinn“

Uppnám fyrir utan heimili Eddie Hall – „Ég ríf af þér hausinn“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump er enn að hella sér yfir blaðamenn – jafnvel þá sem eru með honum í liði

Trump er enn að hella sér yfir blaðamenn – jafnvel þá sem eru með honum í liði