fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

HK harmar samráðsleysi Kópavogsbæjar við uppbyggingu stúku – Milljarða framkvæmd

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 8. mars 2025 19:30

Meirihluti Kópavogsbæjar og Sandra Sigurðardóttir framkvæmdastjóri HK. Myndir/Kópavogsbær/HK

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forsvarsmenn íþróttafélagsins HK eru ósáttir við samráðsleysi Kópavogsbæjar vegna uppbyggingar stúku við félagssvæði HK. Minnihluti bæjarstjórnar segir framkvæmdina engan vegin tímabæra.

Um er að ræða milljarða uppbyggingu á stúku á Vallarkór 12. til 14 sem lengi hefur staðið til að reisa, það er síðan árið 2013. Þetta hvar hins vegar ákveðið áður en Kóraskóli reis, árið 2023, sem hefur breytt myndinni.

Ekki fengið viðunandi viðbrögð

Sandra Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Hk, skrifaði bæjarstjórn bréf 25. febrúar vegna málsins og harmaði samráðsleysi við félagið. Í bréfinu, sem stílað er á Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra, er þakklæti lýst yfir fyrir að ákveðið hafi verið að setja uppbyggingu íþróttamannvirkja í forgang.

„Þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun getum við ekki horft framhjá því að skortur á samráði við félagið í aðdraganda þessarar ákvörðunar og veldur það okkur verulegum vonbrigðum,“ segir Sandra í bréfinu. „Við höfum ítrekað óskað eftir upplýsingum og fundum til að fá að taka þátt í umræðu um útfærslu mannvirkisins, en því miður hefur sú viðleitni okkar ekki fengið viðunandi viðbrögð.“

Segir Sandra það afar mikilvægt að HK fái að koma að borðinu og að tekið verði tillit til sjónarmiða félagsins. Félagið leggi áherslu á að betur hefði mátt útfæra framkvæmdina með hagkvæmari og skilvirkari nýtingu fjármagns og sem uppfylli betur þarfir félagsins.

Bendir hún á að mikil uppbygging sé í vændum í efribyggðum Kópavogs og því mikilvægt að hanna mannvirkið með skynsamlegri og framsýnni nálgun, það er til að það þjóni íbúum Kópavogsbæjar til framtíðar.

Forsendurbreyting

Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs á fimmtudag, 6. mars, og skiptist bæjarstjórn í fylkingar eftir meiri og minnihluta í málinu.

Taldi minnihlutinn málið ekki á vetur setjandi eins og það lítur út í dag. Forsendubreyting hefði orðið.

„Það er engan veginn tímabært að leggja af stað í jafn umfangsmikla framkvæmd og hér er lagt til nú í haust, sér í lagi þar sem ekki hefur verið samráð við HK eins og fram kemur í bréfi framkvæmdastjóra HK,“ segir í bókun fulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vina Kópavogs. „Framkvæmd sem kostar milljarða króna þarf að undirbúa mun betur bæði hvað varðar þarfir Kópavogsbæjar og íþróttafélagsins. Forsendubreyting hefur orðið eftir þarfagreininguna 2023 með tilkomu Kóraskóla.“

Samráð verði haft við HK

Undir þetta tók meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ekki og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

„Frumhönnun hefur verið kynnt í bæjarráði sem taka mið af þarfagreiningu bæjarins og HK.  Sviðsmynd sem horft er til var meðal annars unnið  af vinnuteymi skipuð af tveimur fulltrúum HK. Næsta skref er að funda með HK um áframhald verkefnisins. Mikilvægt er að ramminn liggur nú fyrir og hægt að stíga næstu skref. Samráð verður áfram haft við hagaðila á öllum stigum,“ segir í bókun meirihlutans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast