fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Pressan

Biblían fjarlægð úr skólum í Texas – Bann við bókum með „djörfum kynlífslýsingum“ sprakk í andlit talsmanna þess

Pressan
Föstudaginn 10. janúar 2025 22:00

Gutenberg biblía. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Biblían hefur verið fjarlægð úr skólum í Canyon Independent skólaumdæminu í Texas vegna nýrra laga sem kveða á um að bannað sé að vera með bækur, sem innihalda „djarfar kynlífslýsingar“. Óhætt er að segja að bannið hafi þar með sprungið í andlit talsmanna þess en þar eru kristnir trúhópar áberandi.

Mirror skýrir frá þessu og segir að kveðið hafi verið upp úr um að innihald hinnar heilögu ritningar sé óviðeigandi  vegna „djarfs kynlífsefnis“. Kemur þetta að sögn fram í tölvupósti frá Darryl Flusche, fræðslustjóra skólaumdæmisins, en tölvupóstinum var lekið til fjölmiðla.

Í honum kemur einnig fram að þrátt fyrir að biblían hafi verið fjarlægð úr skólabókasöfnum þá sé hún enn aðgengileg í mörgum almenningsbókasöfnum í skólaumdæminu.

Í tölvupóstinum segir Flusche að samkvæmt nýju lögunum þá sé óheimilt að hafa bækur, sem innihalda svo mikið sem eina kynlífslýsingu, í skólum.

Nú þrýsta kristnir trúhópar í Idaho á um að samskonar bann verði sett þar við bókum sem innihalda kynlífslýsingar. Fróðlegt verður að sjá hvort málið í Texas muni hafa áhrif á þessa hópa.

Ekki eru allir sáttir við ákvörðunina um að fjarlægja biblíuna úr skólunum og sagði Regina Kiehne, foreldri tveggja nemenda og fulltrúi í fræðslunefndinni, að henni finnist fáránlegt að henda „bók guðs“ út með „slæmu bókunum“.

Hún sagði einnig að á tímum eins og nú þar sem þurfi að hafa öryggisverði og skothelt gler og dyr í skólum, þá telji hún að það að börnin hafi aðgang að orðum guðs, geti ekki aðeins komið í veg fyrir ofbeldi, heldur einnig veitt þeim huggun og ákveðið öryggi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Settu líkið í kæli og héldu túrnum áfram – fjölskylda í áfalli eftir dauða á skemmtiferðaskipi

Settu líkið í kæli og héldu túrnum áfram – fjölskylda í áfalli eftir dauða á skemmtiferðaskipi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ótrúlegt myndband af hetjunni í Sydney – „Hann er hetja, 100% hetja“

Ótrúlegt myndband af hetjunni í Sydney – „Hann er hetja, 100% hetja“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Karl konungur með tilfinningaþrungna uppfærslu um krabbameinsbaráttuna

Karl konungur með tilfinningaþrungna uppfærslu um krabbameinsbaráttuna
Pressan
Fyrir 6 dögum

Ráðherrann staðinn að lygum í þinginu – Reyndi að fara undan í flæmingi og flúði svo þingsal

Ráðherrann staðinn að lygum í þinginu – Reyndi að fara undan í flæmingi og flúði svo þingsal
Pressan
Fyrir 1 viku

Sagðist hafa komið að konunni sinni meðvitundarlausri í baðkari en hafði í rauninni drekkt henni

Sagðist hafa komið að konunni sinni meðvitundarlausri í baðkari en hafði í rauninni drekkt henni
Pressan
Fyrir 1 viku

Trump brjálaður og segir það jaðra við landráð að fjölmiðlar saki hann um að vera heilsuveill

Trump brjálaður og segir það jaðra við landráð að fjölmiðlar saki hann um að vera heilsuveill