fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Pressan

Þénar 1,2 milljónir á viku í starfi sem fáir vilja sinna

Pressan
Fimmtudaginn 29. ágúst 2024 07:00

Eitt af verkefnunum sem Libby hefur leyst. Mynd:Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir segja eflaust að þar sem eru viðskiptavinir, þar sé viðskiptatækifæri. En það er þó sumt sem fæstir vilja starfa við og halda sig víðs fjarri þrátt fyrir að þar sé möguleiki á að þéna og það vel.

Libby Denney er 29 ára ensk kona sem starfar við þrif sem aðrir vilja ekki takast á við. Hún hefur sérhæft sig í þrifum á fasteignum sem eru mjög óhreinar og í slæmu standi.

Mörgum myndu eflaust fallast hendur ef þeir ættu að takast á við það sem hún tekst á við en hún lætur engan bilbug á sér finna að sögn Mirror.

Hún hefur rekið fyrirtækið Clean Up Company í 10 ár og hefur tekist á við fjölda krefjandi þrifaverkefna á þeim tíma.

Hún segist hafa þrifið um 2.000 hús og hafi séð næstum allt sem hægt sé að ímynda sér. Allt frá stöflum af rusli og notuðum fullorðinsbleium til húsa sem eru undirlögð af möðkum og dauðum skordýrum.

Hún segir að í hennar huga snúist þetta ekki bara um að gera hreint, heldur einnig að aðstoða fólk við að koma heimilum sínum og lífi aftur á rétta braut.

En auk þess að geta hjálpað fólki þá gefur þetta vel af sér því hún getur haft sem svarar allt að 1,2 milljónum íslenskra króna í laun á viku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýr ferðamannaskattur vekur reiði – Borgaðu fyrir útsýnið

Nýr ferðamannaskattur vekur reiði – Borgaðu fyrir útsýnið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sagan sem snart heimsbyggðina – Robbie Middleton má aldrei gleymast

Sagan sem snart heimsbyggðina – Robbie Middleton má aldrei gleymast
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Pabbi minn gerði þetta og hann gerði það viljandi,“ var það seinasta sem 12 ára drengurinn sagði áður en hann lést

„Pabbi minn gerði þetta og hann gerði það viljandi,“ var það seinasta sem 12 ára drengurinn sagði áður en hann lést
Pressan
Fyrir 4 dögum

Musk er aftur byrjaður að urða yfir fjárlagafrumvarp Trump – „Þetta er algjörlega sturlað“

Musk er aftur byrjaður að urða yfir fjárlagafrumvarp Trump – „Þetta er algjörlega sturlað“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni