
Sky News skýrir frá þessu og segir að lögreglan hafi haft afskipti af Beer í febrúar 2022 þegar hún var á leið að bíl sínum á bílastæðinu við fangelsið. Hún var þá í pásu.
Við leit í bílnum fundu lögreglumenn plastpoka í framsætinu og voru stórar safafernur í honum. Fíkniefni voru í fernunum auk farsíma og SIM-korta.
Beer, sem er þrítug, sagði í fyrstu að einhver henni óviðkomandi hefði komið þessu fyrir í bílnum. Á heimili hennar fann lögreglan 4.000 pund í reiðufé.
Við yfirheyrslu sagði Beer að fangi hafi beðið hana um að smygla fíkniefnunum inn og að hún myndi fá 5.000 pund fyrir verkið. Hún hitti síðan fíkniefnasala á fyrir fram ákveðnum stað og tók við fíkniefnunum sem var búið að koma fyrir í safafernunum. Hún fékk einnig reiðufé hjá honum.