fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

„Alveg pláss fyrir fleiri bæði homma og hælisleitendur, jafnvel samkynhneigða hælisleitendur“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 12. ágúst 2024 12:30

Gleðigangan 2024

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er hægt að halda manneskju niðri, en þá smátt og smátt veslast hún upp og hverfur. Það er líka hægt að lyfta manneskju upp og sjá hana blómstra í öryggi og ást.

Öll blóm eru falleg og eiga jafnan tilverurétt hvort sem það er fífill eða hin fegursta rós, njótum fjölbreytileikans í öllum litum regnbogans, höfum blómagarðinn okkar litskrúðugan, maður getur alltaf á sig blómum bætt,“

segir Guðmunda G. Guðmundsdóttir í grein sinni á Vísi sem ber titilinn Daginn eftir og hinir 364.

Greinina skrifar Guðmunda að loknum Hinsegin dögum og segir hún gaman hvað mörg gátu mætt í Gleðigönguna sem farin var síðastliðinn laugardag. Hún segir baráttuna þó halda áfram, við megum aldrei sofna á verðinum né loka augunum fyrir hatursorðræðu og mismunun.

Guðmunda segist ekki búin að ná öllum hinsegin orðunum eða skilja fyrir hvað þau standa, „en þetta síast smátt og smátt inn í minn gamla gráa haus,“ segir Guðmunda.

„Fögnum öllum þessum nýju hinsegin orðum, við verndum ekki Íslenskuna með því að láta hana staðna hún verður að fylgja tísku og straumum annars deyr hún, hrósum frekar þeim sem bjuggu öll þessi flottu orð til á Íslensku, annars væru þau á ensku ekki væri það betra.“

Gleðigangan 2024

Réðst gegn tveimur minnihlutahópum með stuttri setningu

„Veitum okkar nánustu öryggi og skjól til að vera þau sjálf, verum til staðar og elskum þau skilyrðislaust, þetta er nógu erfitt samt, þau verða að geta leitað til og treyst sínum nánustu því heimurinn er enn fullur af bjánum sem halda að þau og þeirra sé merkilegra eða meira en annara, lítilmenni sem finna þörf hjá sér til að níðast á öðrum vegna kynhneigðar, litarhafts, trúar eða þjóðerni án þess að sjá hvað það gerir þá sjálf lítil og ómerkileg.

„Er ekki nóg af hommum á Íslandi,“ sagði maðurinn eins og frægt er orðið og tókst með þessari litlu setningu að ráðast gegn tveimur minnihlutahópum, hælisleitendum og hommum, eftir því sem ég kemst næst er svarið nei, það er alveg pláss fyrir fleiri bæði homma og hælisleitendur, jafnvel samkynhneigða hælisleitendur ef út í það er farið.

Hver manneskja hið fegursta blóm

Í ást og gleði vex og dafnar

Hefjum upp okkar sterkasta róm

Því ástin öllu hatri hafnar“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“
Fréttir
Í gær

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“
Fréttir
Í gær

Útlit fyrir bongó um helgina

Útlit fyrir bongó um helgina
Fréttir
Í gær

Guðmundur í Brim sakaður um billegan orðhengilshátt í Bítinu í morgun – „Það á enginn fiskinn í sjónum“

Guðmundur í Brim sakaður um billegan orðhengilshátt í Bítinu í morgun – „Það á enginn fiskinn í sjónum“
Fréttir
Í gær

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti