fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Fréttir

Björn Leví segir að þykjustuleikur hafi verið settur á svið – „Það var í rauninni búið að ákveða annað“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 10. apríl 2024 08:54

Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, rifjar upp stjórnarmyndunarviðræður þingflokkanna árið 2017.

Um tíma virtist benda til þess að það yrði mynduð vinstristjórn. Vinstri grænir voru í viðræðum með Pírötum, Samfylkingunni og Framsókn. Framsókn sleit þeim viðræðum og segir Björn Leví í pistli á Vísi að tillögum Pírata um að draga fleiri flokka að til þess að gera stöðugri meirihluta hafi verið hafnað.

Björn Leví segir að þessar viðræður hafi eiginlega verið tilgangslausar þar sem „það var í rauninni búið að ákveða annað ríkisstjórnarsamstarf.“

„Þann 8. nóvember 2017 var allt galopið varðandi myndun ríkisstjórnar, að sögn fráfarandi forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur. Þetta var eftir að Framsóknarflokkurinn sleit ríkisstjórnarviðræðum VG, Samfylkingarinnar, Pírata og Framsóknar. Þessir flokkar voru með mjög tæpan 1 þingsætis meirihluta. Tillögum Pírata um að draga fleiri flokka að til þess að gera stöðugri meirihluta var hafnað og að lokum viðræðunum sjálfum. Allir flokkar þurfi að gera málamiðlanir, sagði fráfarandi forsætisráðherra.

Það stóð ekki á Pírötum að gera málamiðlanir. Það var búið að ná niðurstöðum um kröfur Pírata, til dæmis varðandi það að klára stjórnarskránna á kjörtímabilinu. Við vorum sátt með okkar mál þegar viðræðum var slitið. Það voru því ekki einhverjar óraunhæfar kröfur af okkar hendi sem útilokuðu stjórnarsamstarf þessara flokka. Það virðist frekar hafa verið að Framsóknarflokkurinn lærði allt í einu að telja og þau áttuðu sig á því að eins manns meirihluti væri ekki ásættanlegur. Þetta er flokkurinn sem fer með fjármálaráðuneytið í næstu ríkisstjórn.“

Þykjustuleikur settur á svið

Björn Leví segir Píratar hafi fundið fyrir því að það hafi ekki verið mikil alvara á bak við þessar viðræður.

„Það var í rauninni búið að ákveða annað ríkisstjórnarsamstarf. Það hafi bara þurft að setja þessar viðræður á svið til þess að það væri ekki augljóst að annað hefði þegar verið ákveðið. En óháð því, þá var samt búið að samþykkja kröfur Pírata í þessum viðræðum. Það var mikið reynt að ganga fram af okkur og fá okkur til þess að slíta viðræðunum, en við stóðum við okkar prinsipp og leystum málefnalega úr öllu sem var kastað til okkar,“ segir hann og bætir við:

„Um það snúast nefnilega málamiðlanir í stjórnmálum. Að leysa málefnalega úr þeim áskorunum sem við fáum í hendurnar, án þess að það þurfi að ganga á siðferðiskennd eða réttlætiskennd eða sannfæringu samstarfsfólks. Að passa upp á að enginn þurfi að gefa afslátt af prinsippum sínum.

Fyrir alþingiskosningar 2021 sagði fráfarandi forsætisráðherra að allir flokkar þyrftu að brjóta odd af oflæti sínu og fallast á málamiðlanir. En það er eitt að gera málamiðlanir og annað að leggjast kylliflatur yfir sannfæringu sína og láta valta yfir sig fram og til baka.“

Ríkisstjórn Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs

Algjört lágmark

Björn Leví segir að það eigi ekki að vera flókið að gera þær kröfur á samstarfsflokka að vinna faglega.

„Og að ganga ekki á prinsipp samstarfsfélaga sinna. Það er svona lágmarkið í öllu samstarfi, ekki satt? Þannig að já, ef það yrði slíkur trúnaðarbrestur þá væri mjög eðlilegt að endurskoða slíkt samstarf. Það er ástæðan fyrir því að við segjum það eins skýrt og hægt er að það sé ekki hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn. Við vitum að sá flokkur (flokkurinn, ekki fólkið) starfar þannig. Fyrir því eru ótal söguleg dæmi. Það er einfaldlega fyrirsjáanlegt að samstarf með Sjálfstæðisflokknum myndi enda fyrr en síðar með slíkum trúnaðarbresti að ekki væri hægt að halda samstarfinu áfram. Við erum hins vegar alltaf til í samstarf um einstaka góðar hugmyndir, því allir geta komið með góðar hugmyndir óháð því hvort fólk sé í einhvers konar ríkisstjórnarsamstarfi eða ekki.“

Núverandi ríkisstjórnarsamstarf

„Núverandi ríkisstjórnarsamstarf hefur hins vegar fórnað öllum prinsippum fyrir valdastólana. Það er sama hvað gerist, áfram skröltir samstarfið,“ segir Björn Leví.

„Það má kalla það málamiðlanir en að mínu mati er þetta undirgefni og uppgjöf. Samstarfið og stólarnir eru mikilvægari en prinsippin – og ef það er staðan, hvað er þá eftir, málefnalega? Starf stjórnmálamanna snýst nefnilega um sannfæringu þeirra. Og ef þú þarft stöðugt að fórna sannfæringu þinni, hvers konar stjórnmálamaður ertu þá?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Einar Ágúst sneri við blaðinu eftir símtal frá þekktum handrukkara – „Þitt hjartalag á ekki heima hérna“

Einar Ágúst sneri við blaðinu eftir símtal frá þekktum handrukkara – „Þitt hjartalag á ekki heima hérna“
Fréttir
Í gær

Fleiri nýleg gjaldþrot Ásgeirs – Mörg hundruð milljónir í súginn

Fleiri nýleg gjaldþrot Ásgeirs – Mörg hundruð milljónir í súginn
Fréttir
Í gær

Jóhanna Vigdís fær á baukinn eftir viðtal við Höllu Hrund: „Furðulegar spurningar satt að segja“

Jóhanna Vigdís fær á baukinn eftir viðtal við Höllu Hrund: „Furðulegar spurningar satt að segja“