fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
Fréttir

Ragnar Þór ómyrkur í máli – „Alltaf að koma betur og betur í ljós að lífeyrissjóðirnir eru plága í íslensku samfélagi“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 27. nóvember 2023 14:00

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir það alltaf koma jafn mikið á óvart hversu „taktlausir“ og „siðlausir“ lífeyrissjóðirnir og talsmenn þeirra eru.

Ragnar gerir þetta að umtalsefni á Facebook-síðu sinni og er tilefnið atburðirnir á Reykjanesi sem hafa haft gríðarleg áhrif á líf Grindvíkinga að undanförnu. Spyr Ragnar Þór hvað lífeyrissjóðirnir ætla að gera fyrir þá.

„Nú hafa bankarnir ákveðið að fella niður vexti og verðbætur á húsnæðislánum Grindvíkinga, í þrjá mánuði, en sjóðirnir bera fyrir sig lagaóvissu um málið,“ segir hann og heldur áfram:

„Lífeyrissjóðirnir geta sem sagt haft stjórnarformenn sem hafa réttarstöðu sakbornings eða verið þátttakendur með öðrum hætti í stærsta samkeppnisbrotamáli Íslandssögunnar en borið fyrir lagaóvissu við að fylgja samkeppni á fjármálamarkaði?“

Ragnar segir að auðvitað sé alltaf lagaóvissa þegar kemur að því að gera eitthvað fyrir fólkið og aldrei megi hafa samráð þegar taka þarf samfélagslega mikilvægar ákvarðanir.

„Við megum ekki og getum ekki! Öðru máli gegnir þegar verja þarf kerfið eða aðlaga að þörfum fjármálakerfisins eða sérhagsmuna. Ekkki er langt síðan að breyta þurfti lögum um fjárfestingaheimildir lífeyrissjóða svo SA gæti þrýst þeim í að bjarga Icelandair.“

Ragnar vísar í heimasíðu Landssamtaka lífeyrissjóða þar sem segir að hlutverk samtakanna sé meðal annars að gæta í hvívetna hagsmuna sjóðfélaga, hafa frumkvæði í þjóðmálaumræðu um málefni sjóðanna og lífeyrismál og stuðla að jákvæðri ímynd þeirra.

„Það þarf ekki að kafa djúpt til að komast að þeirri niðurstöðu að landssamtökin sinni hvorugu þessu hlutverki. Og set ég stórt spurningarmerki um hvort það sé hreinlega löglegt að sjóðirnir fjármagni þessi samtök. Það er alltaf að koma betur og betur í ljós að lífeyrissjóðirnir eru plága í íslensku samfélagi.“

Ragnar Þór nefnir enga tiltekna lífeyrissjóði á nafn í færslu sinni en fyrir helgi var greint frá því að Gildi lífeyrissjóður væri stærsti lánveitandi lífeyrissjóðanna í Grindavík.

Í umfjöllun RÚV síðastliðinn fimmtudag kom fram að Gildi hefði boðið Grindvíkingum upp á sex mánaða frystingu afborgana fasteignalána en jafnframt var bent á að lög um lífeyrissjóði takmarki svigrúm þeirra til að gefa eftir lánagreiðslur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“
Fréttir
Í gær

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti