fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Fréttir

Segir að ef allt fer á besta veg geti íbúar Grindavíkur þurft að vera frá heimilum sínum í 6-8 mánuði

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 19. nóvember 2023 13:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir að kalt mat sé að Grindvíkingar geti verið að horfa fram á 6-8 mánuði frá heimilum sínum í Grindavík. Staðan hans fólki sé æði misjöfn en það sem helst brenni á Grindvíkingum sé að komast með fjölskyldur sínar í skjól í húsnæði þar sem horft sé til einhverra vikna eða mánaða. Þetta kom fram í viðtali við Fannar í Sprengisandi nú í morgun.

Fráveituvandinn varla leystur um hávetur

„Vonandi er tíminn styttri en það,“ segir Fannar. Hann bendir á tíðar bilanir og stopula afhending  í veitu- og rafmagnskerfinu og hans fólk óttist að þannig verði ástandið áfram. „Ef fráveitan er ekki í lagi þá er ekki hægt að ætlast til þess að fólk búi í húsunum,“ segir Fannar og bætir við að þetta eigi sérstaklega við þau hús sem eru á þeim svæðum þar sem sprungan liggur eftir miðjum bænum, þar sé ástandið langverst.

Segir hann að bæjaryfirvöld geri ráð fyrir því að það muni ganga erfiðlega að laga fráveitukerfið um hávetur. Hann reikni því með að endurbætur og uppbygging, ef allt fer á besta veg, geti hafist á vormánuðum, apríl og maí, og mundi standa yfir fram eftir sumri og fram á haust.

Hann segir að möguleiki sé á að íbúar vestast og austast í bænum geti flutt inn fyrr. „En ég held að það þýði ekki að gera ráðstafanir upp á styttri tíma hvað búsetu varðar heldur en 6-8 mánuði, við vinnum með það,“ segir Fannar.

Um 600 fjölskyldur líklega í óboðlegu húsnæði til lengri tíma

Aðspurður segir Fannar að áætlanir séu að stöðugt að breytast og Grindavíkingar þurfi að vera undir það búnir. Segir hann að íbúar sem hann hafi rætt við kunni að meta það að heyra einhverjar mögulegar tímasetningar varðandi heimkomuna, þó að þær breytist, frekar en að vera í stöðugri óvissu.

Segir hann nú mikilvægt að stjórnvöld vinni að því að þau úrræði sem Grindvíkingum verði boðið upp á séu í hálft ár hið minnsta. Segir hann að sem betur fer sé hluti íbúa þegar búnir að finna slíkar lausnir en enn sé alltof stór hópur sem sé á hrakhólum. Telur Fannar að um 600 fjölskyldur þurfi frekari úrlausnir, enginn sé á götunni en að húsnæðið sé ekki boðlegt til lengri tíma.

Það sé erfitt, sérstaklega í ljósi þess að jólin með öllum sínum hefðum séu framundan.

„Við verðum að horfa til þess að það verða öðruvísi jól hjá okkur,“ segir Fannar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Langmesta orkuöryggið á Íslandi

Langmesta orkuöryggið á Íslandi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Einar pantaði sendingu að utan og birtir mynd af reikningnum frá Póstinum – „Löglegt rán að degi til“

Einar pantaði sendingu að utan og birtir mynd af reikningnum frá Póstinum – „Löglegt rán að degi til“
Fréttir
Í gær

Næstdýrasta bensínið á Íslandi – Bara Hong Kong slær okkur við

Næstdýrasta bensínið á Íslandi – Bara Hong Kong slær okkur við
Fréttir
Í gær

Eldri maður fannst í angist úti á götu – „Ef þeir myndu velja konur á þeirra aldri væru þeir ólíklegri til þess að verða plataðir“

Eldri maður fannst í angist úti á götu – „Ef þeir myndu velja konur á þeirra aldri væru þeir ólíklegri til þess að verða plataðir“