fbpx
Þriðjudagur 16.september 2025
Pressan

Áhugafornleifafræðingur gerði magnaða uppgötvun

Pressan
Mánudaginn 11. september 2023 15:00

Hluti af fjársjóðnum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Með nýkeyptu málmleitartæki gerði norskur áhugafornleifafræðingur magnaða uppgötvun. Hann keypti málmleitartæknið eftir að læknirinn hans ráðlagði honum að hreyfa sig meira. Og það borgaði sig sannarlega því hann fann níu gullmedalíur, perlur og þrjá gullhringi. Allt er þetta frá sjöttu öld.

Það var á akri nærri Stavanger sem maðurinn, Erlend Bore, fann þessa merku muni í ágúst. „Í fyrstu hélt ég að þetta væru súkkulaðimedalíur,“ sagði hann og bætti við að þetta hafi verið algjörlega óraunveruleg upplifun.

Fornleifafræðingar segja að medalíurnar geri fundinn algjörlega einstakan. Ástæðan er hönnun þeirra en á henni sjást hestar úr norrænni goðafræði.

Ole Madsen, safnstjóri fornleifasafnsins í Stavanger, sparaði ekki stóru orðin og sagði þetta gullfund aldarinnar í Noregi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona getur þú prófað hversu heilbrigð lungun þín eru

Svona getur þú prófað hversu heilbrigð lungun þín eru
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamaður segir að villtir draumar Pútíns um eilíft líf séu ekki svo fjarstæðukenndir

Vísindamaður segir að villtir draumar Pútíns um eilíft líf séu ekki svo fjarstæðukenndir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fékk ekki hlutverkið sem hann sóttist eftir – Leikstjórinn vildi ekki „Luke Skywalker“

Fékk ekki hlutverkið sem hann sóttist eftir – Leikstjórinn vildi ekki „Luke Skywalker“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulli brúðkaupsgesturinn – Brúðurin komst að sannleikanum mörgum árum síðar

Dularfulli brúðkaupsgesturinn – Brúðurin komst að sannleikanum mörgum árum síðar
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bolsonaro sakfelldur fyrir valdaránstilraun

Bolsonaro sakfelldur fyrir valdaránstilraun
Pressan
Fyrir 4 dögum

Losnar ekki við óumbeðnar athugasemdir nágrannans – „Ég er ekki hörundsár, en ég hef fengið algjörlega nóg“

Losnar ekki við óumbeðnar athugasemdir nágrannans – „Ég er ekki hörundsár, en ég hef fengið algjörlega nóg“