Útgáfa af þessu japanska kjúklingasalati er í vopnabúri margra heimila og nýtur ávallt vinsælda. Mismunandi útgáfur eru til og eflaust einhverjir sem að reka augun í hráefni sem þeir eru ekki vanir nú eða vantar. En það sem máli skiptir er að þetta salat er gjörsamlega ljúffengt og slær alltaf í gegn.
Hráefni
Kjúklingur
- 700 g Kjúklingurbringur
- 2 dl Sweet chili sósa
- 120 ml Ólífuolía
- 60 ml Balsamik edik
- 2 msk Sykur
- 2 msk Sojasósa
- 85 g Instant núðlur
- 90 g Möndluflögur
- 2 msk Sesamfræ
Salatið
- 1 poki Salat
- 200 g Kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
- 1 mangó, skorið í teninga
- 0.5 Rauðlaukur, skorinn í sneiðar
Leiðbeiningar
- Skerið kjúklinginn í litla bita eða strimla. Setjið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn. Hellið vökva sem kemur frá kjúklinginum ef einhver er.
- Þegar kjúklingurinn er næstum tilbúinn bætið þá sweet chilí sósu saman við og látið malla í 3-5 mínútur.
- Gerið þá sósuna með því að sjóða öll hráefnin saman í um 1-2 mínútur. Kælið og hrærið stanslaust í sósunni meðan hún kólnar.
- Myljið núðlurnar og ristið á pönnu. Bætið möndluflögum og sesamfræjum og ristið saman í 1 mínútu.
- Setjið salatið í skál ásamt mangó, tómötum rauðlauk. Hellið sósunni saman við og smá af núðlublöndunni og blandið vel saman.
- Setjið kjúklingabitana yfir salatið og stráið afganginum af möndlukurlinu yfir allt