fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
Eyjan

Garðar tekur við keflinu hjá Loðnuvinnslunni úr hendi Friðriks Mar

Eyjan
Fimmtudaginn 20. júlí 2023 12:02

Garðar Svavarson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Garðar Svavarsson hefur verið ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar hf. Fáskrúðsfirði. Garðar tekur við starfinu af Friðriki Mar Guðmundssyni sem lætur af störfum á haustmánuðum eftir 19 ára starf hjá félögunum, þar af sem framkvæmdastjóri undanfarin 10 ár.

Garðar er sjávarútvegsfræðingur að mennt og kemur til félaganna frá Brim hf. þar sem hann hefur starfað í 24 ár, þar af sem forstöðumaður uppsjávarsviðs Brims hf. undanfarinn áratug.

Garðar hefur mjög víðtæka reynslu af störfum innan sjávarútvegs en frá því að hann hóf störf í fiskvinnslu á unglingsárum hefur hann gegnt hinum ýmsu störfum á sviði framleiðslu, sölu og markaðsmála. Garðar hefur tekið virkan þátt í uppbyggingu félagsins undanfarin ár, nú síðast með því að leiða uppsjávarsvið félagsins í áratug með góðum árangri.

Samhliða því að taka við starfi kaupfélagsstjóra Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar hf. Fáskrúðsfirði mun Garðar flytja með fjölskyldu sína til Fáskrúðsfjarðar en hann er kvæntur Aldísi Önnu Sigurjónsdóttir, náms- og starfsráðgjafa, og eiga þau saman fjögur börn.

Friðrik Mar Guðmundsson

Öflugur rekstur og viðburðarík ár

Loðnuvinnslan er að mestu leyti í eigu kaupfélagsins. Rekstur Loðnuvinnslunnar hefur gengið vel undanfarin ár og var árið 2022 besta ár í sögu félagsins. Eigið fé félagsins hefur fimmfaldast á undanförnum 10 árum, farið úr 3 milljörðum í 16 milljarða, og hagnaður verið samtals 14,5 milljarðar. Stjórnir beggja félaganna þakka Friðriki fyrir öfluga uppbyggingu og farsælt starf í þágu þeirra á liðnum árum.

„Ég vil þakka fyrir það traust og þann stuðning sem ég hef fengið frá starfsfólki og stjórn félaga á liðnum árum. Ég er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð saman. Jafnframt er ég þakklátur því að jafn reynslumikill og traustur maður og Garðar Svavarsson taki við keflinu í haust og leiði fyrirtækið inn í nýja tíma,“ segir Friðrik Mar Guðmundsson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Lögregla rúin trausti

Lögregla rúin trausti
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ragnar sakar Jón um að tala niður til þjóðarinnar og Jón minnir á söguna um litlu gulu hænuna

Ragnar sakar Jón um að tala niður til þjóðarinnar og Jón minnir á söguna um litlu gulu hænuna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þurfti að stilla til friðar eftir háðsglósur á Alþingi þar sem þingmaður móðgaðist og meirihlutinn flissaði – „Bíddu, hvar hefurðu verið?“

Þurfti að stilla til friðar eftir háðsglósur á Alþingi þar sem þingmaður móðgaðist og meirihlutinn flissaði – „Bíddu, hvar hefurðu verið?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann
Eyjan
Fyrir 1 viku

Formaður Sjálfstæðisflokksins fór í vikulangt frí daginn áður en eitt stærsta mál þessa þings var tekið til fyrstu umræðu

Formaður Sjálfstæðisflokksins fór í vikulangt frí daginn áður en eitt stærsta mál þessa þings var tekið til fyrstu umræðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilhjálmur brýnir sinn gamla flokk – Vill að meira verði gert fyrir Breiðholtið

Vilhjálmur brýnir sinn gamla flokk – Vill að meira verði gert fyrir Breiðholtið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Diljá Mist Einarsdóttir: Trump hefur sértrúarsöfnuð í kringum sig – Ísland hefur sérstöðu

Diljá Mist Einarsdóttir: Trump hefur sértrúarsöfnuð í kringum sig – Ísland hefur sérstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Heimur í höndum skemanns

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Heimur í höndum skemanns