fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Svona verða lokanirnar út af leiðtogafundinum – Tafir verða á umferð um allt höfuðborgarsvæðið og á Reykjanesbrautinni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 15. maí 2023 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan 23 í kvöld, mánudaginn 15. maí, hefjast götulokanir í miðbænum vegna Leiðtogafundar Evrópuráðsins sem stendur yfir í Hörpu á þriðjudag og miðvikudag. Svæðið í kringum Hörpu verður lokað fyrir allri umferð en hluti Sæbrautar, Kvosin, Lækjargata, Fríkirkjuvegur, Laufásvegur og Skothúsvegur verða lokaðar fyrir umferð bíla og rafhlaupahjóla en opnar fyrir gangandi og hjólandi umferð. Strætisvagnar munu ekki aka um lokaðar götur.

Þó að boðaðar lokanir hefjist í kvöld hafa frá því fyrir helgi verið í gangi einhverjar lokanir á milli Þingholta og kvosarinnar og hafa verið settir upp vegartálmar í nokkrum götum.

Mynd: Stjórnarráð Íslands.

Búast má við tímabundnum umferðarteppum á Reykjanesbrautinni, milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins, vegna fylgdaraksturs með þjóðarleiðtogum, og af sömu ástæðum má búast tímabundið við hægari umferð um allt höfuðborgarsvæðið en vanalega. Er ökumönnum ráðlagt að áætla lengri ferðatíma en vanalega af þessum ástæðum. Þjóðarleiðtogarnir sem sækja fundinn koma með einkaflugi og lenda ýmist á Keflavíkurflugvelli eða Reykjavíkurflugvelli.

Lokanirnar hefjast, sem fyrr segir, í kvöld kl. 23, og þeim verður aflétt kl. 18 á miðvikudag. „Þó ber að hafa í huga að einhverjar truflanir verða á umferð og jafnvel styttri lokanir á götum eða akreinum frá laugardeginum 13. maí til fimmtudags 18. maí þegar verið er að setja upp lokunarbúnað og taka hann niður,“ segir á vef Stjórnarráðs Íslands.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump