Gauti Geirsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarmaður utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar í hálft starf. Gauti hóf störf í dag, 8. febrúar að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Gauti er 22 ára og leggur stund á rekstrarverkfræði í Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur starfað sem háseti og vélstjóri á togara og farþegaskipum.
Annar aðstoðarmaður af tveimur, Margrét Gísladóttir, sagði upp störfum sem aðstoðarmaður ráðherrans í byrjun á síðasta ári. Hinn aðstoðarmaður Gunnas Braga er Sunna Gunnars Marteinsdóttir.