fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Pressan

Þetta þekkja aðeins þeir sem hafa verið einhleypir í langan tíma

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 4. febrúar 2023 21:00

Sefur hann hægra eða vinstra megin?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það fylgja því kostir og gallar að vera einhleyp(ur). Eflaust má deila um hvaða kostir fylgja því og hvaða gallar. En það að vera einhleyp(ur) gerir að verkum að fólk lærir eitt og annað, temur sér eitt og annað og upplifir eitt og annað sem fólk í sambandi upplifir ekki.

Hér nefnum við nokkur atriði til sögunnar sem eiga við um fólk sem hefur verið einhleypt í langan tíma.

Þú þróar undarlegar venjur með þér. Þú ert ekki viss um að þú getir nokkru sinni búið með einhverjum aftur því þú vilt ekki játa að þú talar við brauðristina og dansar um nakin(n) við góða tónlist.

Þú vilt ekki deila hlutum með öðrum. Af hverju að deila pítsu með öðrum þegar hver getur fengið sína pítsu?

Fólk hættir alveg að spyrja þig hvernig ástarlífið gengur. Það sama á einnig við um aðra hluti, þú losnar við pirrandi  spurningar því fólk veit að svarið er alltaf hið sama.

Þú ert bara með hluti heima hjá þér, sem þér finnst flottir.

Þú gerðir prófíl á stefnumótasíðu fyrir nokkrum árum en þegar þú lest hann núna, þá kannastu ekki við hann. Ný-einhleypa þú var allt önnur persóna en einhleypa þú í dag.

Þú manst ekki hvenær þú kysstir einhvern síðast og það sem er enn verra. Það sama gildir um kynlífið þitt. Þú manst ekki hvenær þú stundaðir kynlíf, með einhverjum öðrum, síðast.

Þú hræðist ekki að fara ein(n) í bíó eða kaffihús.

Þú hefur neyðst til að finna þér nýja einhleypa vini því þeir gömlu eru allir gengnir út.

Þú notar eldavélina mjög sjaldan en hins vegar ert þú meistari í að panta skyndibitamat og fá þér skyr.

Þú ert frábær í að stunda kynlíf með sjálfum/sjálfri þér. Það eru til unglingspiltar sem fitla minna við sig en þú fitlar við þig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Nú er það svart – Giftu sig í kirkjugarði í þema Addams fjölskyldunnar

Nú er það svart – Giftu sig í kirkjugarði í þema Addams fjölskyldunnar
Pressan
Í gær

Vísindamenn segja þetta vera eina dýrið sem gæti lifað heimsendi af

Vísindamenn segja þetta vera eina dýrið sem gæti lifað heimsendi af
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir deilir góðum ráðum til að léttast án þess að þjást

Læknir deilir góðum ráðum til að léttast án þess að þjást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er besta sætið í flugvélum og samt vill enginn sitja þar

Þetta er besta sætið í flugvélum og samt vill enginn sitja þar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrir 50 árum var ungri móður nauðgað og hún myrt þegar hún var á ferð með dóttur sinni – Núna liggur fyrir hver morðinginn er

Fyrir 50 árum var ungri móður nauðgað og hún myrt þegar hún var á ferð með dóttur sinni – Núna liggur fyrir hver morðinginn er
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sakfelldir fyrir að fella eitt frægasta tré Bretlands í skjóli nætur – Þurfa að dvelja í varðhaldi út af reiði almennings

Sakfelldir fyrir að fella eitt frægasta tré Bretlands í skjóli nætur – Þurfa að dvelja í varðhaldi út af reiði almennings