fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Fókus

Maríanna fagnaði stórafmæli með ástinni í Dúbaí

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 19. janúar 2023 11:01

Maríanna Pálsdóttir og Guðmundur Ingi ástfangin í Dúbaí.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maríanna Pálsdóttir snyrti- og förðunarfræðingur fagnaði stórafmæli í Dúbaí með ástinni sinni, Guðmundi Inga Hjartarsyni.

Maríanna er eigandi Snyrtistofu Reykjavíkur og er einn þekktasti förðunarfræðingur landsins. Hún hlaut sérstök verðlaun úr hendi forseta Íslands fyrir framúrskarandi árangur í námi þegar hún útskrifaðist með sveinspróf í snyrtifræði í fyrra.

Maríanna og Guðmundur í eyðimörkinni. Aðsend mynd.

Hún og Guðmundur eru stödd í Dúbaí þessa dagana til að fagna afmæli hennar.

Hún varð fjörutíu ára á þriðjudaginn og segist aldrei hafa liðið betur.

Maríönnu hefur aldrei liðið betur. Aðsend mynd.

DV sló þráðinn til Maríönnu sem átti stórkostlegan afmælisdag í hæstu byggingu heims, Burj Khalifa.

„Þetta var algjörlega óraunverulegt að vera í hæstu byggingu í heimi að fagna. Við fórum svo á veitingastað í sama húsi og horfðum á gosbrunnasýninguna,“ segir hún.

„Þetta er eins og tölvugerð veröld. Við vorum til dæmis á skíðum í gær.“

Maríanna í hæstu byggingingu heims. Aðsend mynd.
Gosbrunnasýningin.
Byggingin Burj Khalifa.

Janúar er kaldasti mánuður Dúbaí en meðalhitastig er í kringum 20 gráður. Skíðasvæðið er því inni og yfir 22 þúsund fermetrar að stærð.

Parið fór á skíði og skemmti sér konunglega.

„Þetta er allt svo óraunverulegt, engan veginn það sem maður er vanur heima,“ segir hún.

Maríanna hefur verið dugleg að birta myndir frá ferðalaginu á Instagram. 

Mynd/Instagram
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Aníta hætti að drekka áfengi og finnur strax mikinn mun

Aníta hætti að drekka áfengi og finnur strax mikinn mun