fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Sjaldgæf bók um Harry Potter seldist á 1,4 milljónir

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 19. desember 2022 20:30

Umrædd bók. Mynd:Hansons uppboðshúsið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjaldgæf útgáfa af fyrstu bókinni um galdrastrákinn Harry Potter seldist fyrir 1,4 milljónir á uppboði í síðustu viku. Þessi útgáfa var aldrei í almennri sölu en aðeins 15 eintök voru framleidd.

BBC segir að bókin hafi verið árituð af JK Rowling, höfundi hennar, og hafi verið ein af fimmtán sem voru framleiddar sérstaklega fyrir samkeppni í tilefni af því að 15 ár voru liðin frá útgáfu fyrstu bókarinnar í bókaflokknum.

Það var Chloe Esslemont sem fékk bókina í verðlaun á sínum tíma en hún var þá 16 ára.

Bloomsbury bókaforlagið efndi til samkeppninnar 2012 og bað þátttakendur um að skrifa bréf þar sem þeir skýrðu frá af hverju þeir elskuðu bækurnar um Harry Potter.  Aðeins var hægt að taka þátt með því að setja bréfin í sérstaka póstkassa í ákveðnum bókaverslunum og bókasöfnum.

Fimmtán þátttakendur fengu eintak af sérprentuðu bókinni í verðlaun og var Esslemont þeirra á meðal.

BBC hefur eftir henni að hún hafi geymt bókina uppi á lofti árum saman en hafi nú ákveðið að selja hana því peningarnir muni koma sér vel.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér