Fyrrum fyrirsætan Janet Bedin hefur stefnt fyrrverandi kærasta sínum, sem er á níræðisaldri, fyrir ýmsar sakir, meðal annars fyrir meiðyrði, áreitni og ólöglegan útburð.
Meint ástarsaga þeirra er í stefnu sögð hafa hafist árið 1976 þegar Janet, þá 21 árs, byrjaði að leigja íbúð af Vito Verni, sem þá var 38 ára gamall. Hann hafi nýtt leigusambandið til að kynnast henni nánar og dregið hana á tálar.
Samband þeirra hafi svo verið sundur og saman í gegnum árin, enda var Vito giftur annarri konu.
Kona hans lést svo árið 2018 og þá hafði Vito samband við Janet og bauð henni á stefnumót. Hann hafi í kjölfarið þrýst á hana og krafist þess að hún hætti í vinnu sinni og færi að búa með honum.
Hann hafi svo krafist þess að hún væri með honum hverja stund og að hann ætti óskipta athygli hennar. Í staðinn ætlaði Vito að borga alla reikninga hennar, þar með talið fyrir reikninga vegna veiks bróður hennar, og halda henni upp í lúxus lífi þar sem þau myndi ferðast, hitta vini, fara á söfn og námskeið.
En um leið og Janet flutti inn hafi annað átt sér stað. Vito hafi verið mjög stjórnsamur og beitt hana bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi. Hann hafi líka farið fram á að hún stundaði kynlíf með honum allt að tíu sinnum á dag.
Í stefnu í málinu er því haldið fram að Vito hafi sýnt Janet myndir af trúlofunarhring og notað það til að fá hana til að fórna ferli sínum. Í stefnunni er máluð mynd af metnaðarfullri konu á framabraut sem hafi fórnað öllu eftir að Vito gabbaði hana með loforðum um ljúfa lífið – sem hann hafi svo ekki staðið við. Hún heldur því fram að hann hafi jafnvel sannfært hana um að losa sig við hundinn sinn.
Í stefnu segir: „Stefnandi átti að alfarið að vera ummönnunaraðili hans. Hann ætlaðist til þess að stefnandi væri tilbúin að fullnægja öllum hans kynlífsþörfum, vera fylgdarkona hans, þvo þvottinn hans, elda matinn hans. (Það kom á daginn að þetta þýddi kynlíf allt að tíu sinnum á dag),“
Janet fer fram á 80 milljón Bandaríkjadali í skaðabætur. Vito hefur gripið til varna í málinu. Hann heldur því fram að Janet sé að reyna að kúga út úr honum peninga. Þau hafi í raun ekki átt í ástarsambandi heldur spjallað saman nokkra daga í viku en ekkert meira. Vito segir að hann hafi í fjögur aðskilin skipti fengið nálgunarbann geng Janet og hún hafi áður reynt að fá þetta sama mál tekið fyrir hjá öðrum dómstól þar sem dómari hafi furðað sig á því að Janet væri ekki komin í fangelsi eftir fjárkúgunartilraunir hennar gegn Vito.