fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
433Sport

Sigmundur harðorður: Engin virðing fyrir mannslífum – „Hefðu þau skilið lesbíurnar eftir heima?“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 3. nóvember 2022 09:00

Mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ritstjórinn, Sigmundur Ernir Rúnarsson fer hörðum um þau mannrétindabrot sem eiga sér stað í Katar í leiðarar Fréttablaðsins í dag.

17 dagar eru í að Heimsmeistaramótið í knattspyrnu fer af stað í Katar en umdeilt hefur verið að mótið sé haldið í landinu.

Mannréttindi samkynhneigðra, aðbúnaður verkafólks og fleira og fleira hefur verið harðlega gagnrýnt. „Heimsmeistaramótið í knattspyrnu karla hefst í Katar eftir sautján daga, en undirbúningur þess hefur kostað mörg þúsund erlenda verkamenn lífið, enda hafa vinnuskilyrðin verið langt undir þeim öryggisviðmiðum sem þykja sjálfsögð í Evrópu,“ skrifar Sigmundur í leiðara Fréttablaðsins.

„Engu að síður hafa forkólfar heimsknattspyrnunnar geð í sér til að blása til glæsilegustu fótboltaveislu síðari áratuga í þessu landi afturhalds sem ber enga virðingu fyrir mannslífum og mannréttindum. Mannvirðingu og umburðarlyndi skal um stundarsakir vera komið fyrir í skugganum af glæsilegum íþróttamannvirkjum sem kosta allt að þrjátíu milljarða króna, sem nemur líklega fjórföldum samanlögðum kostnaði við öll heimsmeistaramótin hingað til.“

Sigmundur segir Katar vera ofbeldisríki. „ Það er raunalegt að vinsælustu íþróttagrein í heimi skuli vera valinn staður í ofbeldisríki af því tagi sem Katar er. Það er skammarlegt að knattspyrnuforystan í heiminum verðlauni stjórnvöld í landi sem er uppfullt af eitruðum fordómum – og eiga enga samleið með þeim lýðræðisþjóðum sem trúa á skoðanafrelsi og jafnrétti.“

„Í tilviki heimamanna liggur dauðarefsing við samkynhneigð. Hinsegin fólk sem ferðast til þessa lands getur átt yfir höfði sér sjö ára fangelsi ef það verður uppvíst að kynhneigð sinni. Öll kyntjáning á götum úti er bönnuð.“

Sigmundur segir að afsláttur sé nú gefin af mannréttindum vegna þess að þar fer fram stærsta íþróttamót í heimi.

„Á næstu vikum ætlar heimsbyggðin að gefa afslátt af þeim mannréttindum sem barist hefur verið fyrir með kjafti og klóm í svo að segja mannsaldur. Á öllum þeim fótboltadögum sem fram undan eru munu stórir hópar í frjálsum samfélögum þessarar jarðar vera áminntir um það að á tyllidögum helstu og ríkustu íþróttagreinar mannkyns er allt í lagi að loka augunum fyrir harðsvíruðustu tegund af hinseginfóbíu sem þekkist á þessari heimskringlu okkar.“

„Hvað hefðu íslensk knattspyrnuyfirvöld gert ef Heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu hefði verið valinn staður í Katar? Hefðu þau skilið lesbíurnar í liðinu eftir heima?,“ skrifar Sigmundur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Enzo og umboðsmaðurinn biðjast afsökunar

Enzo og umboðsmaðurinn biðjast afsökunar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Eigendur Liverpool telja að Slot eigi að halda áfram á næstu leiktíð

Eigendur Liverpool telja að Slot eigi að halda áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Bruno fer yfir þá hluti sem Carrick hefur breytt

Bruno fer yfir þá hluti sem Carrick hefur breytt
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Lést þegar hann fór út að hlaupa að morgni

Lést þegar hann fór út að hlaupa að morgni
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Telur dómara reyna allt til þess að Ronaldo verði meistari

Telur dómara reyna allt til þess að Ronaldo verði meistari
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir að skálað hafi verið í Fossvoginum yfir þessari umdeildu ákvörðun í Kópavogi í vetur

Segir að skálað hafi verið í Fossvoginum yfir þessari umdeildu ákvörðun í Kópavogi í vetur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum
433Sport
Í gær

Er að skrifa undir nýjan samning

Er að skrifa undir nýjan samning