fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

DNA úr beinagrindum varpar ljósi á hvaðan fyrstu Englendingarnir komu

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 22. október 2022 12:00

DNA úr þessum beinagrindum varpar ljósi á uppruna Englendinga.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

DNA-sýni, sem voru tekin úr beinagrindum í grafstæðum víða um England, varpa ljósi á hvaðan fyrsta fólki, sem kallaði sig Englendinga kom. Niðurstaðan getur breytt skilningi okkar á Englandi til forna.

Sky News skýrir frá þessu og segir að rannsóknin, sem hefur verið birt í Current Archaeology, sýni að fólkið kom að stærstu hluta frá norðanverðri Evrópu, aðallega Þýskalandi, Danmörku og Hollandi.

Niðurstöðurnar ganga gegn viðteknum hugmyndum um að forfeður Englendinga hafi búið saman í litlum hópum.

Rannsóknin bendir til þess að mikill fjöldi fólks hafi streymt til Bretlands frá meginlandinu og jafnvel allt frá vestanverðri Afríku á Miðöldum.

Duncan Sayer, sem vann að rannsókninni og er fornleifafræðingur við University of Central Lancashire, sagði að niðurstöðurnar séu áminning um að forfeðurnir hafi ekki búið í litlu þorpi þar sem allir dönsuðu í kringum maístöng. Niðurstöðurnar geti breytt skilningi okkar á Englandi til forna og sýni hversu mikilvægu hlutverki innflytjendur hafi gegnt.

DNA-sýni voru tekin úr 460 beinagrindum í gröfum sem voru teknar frá því 200 fyrir krist til 1300 eftir krist.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér