fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Skotinn til bana við skyndibitastað – Sonurinn sakfelldur

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 20. október 2022 21:00

Sylvestre Zottola.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2018 var Sylvester Zottola skotinn nokkrum skotum í höfuðið og líkama þar sem hann var á McDonald‘s veitingastað í New York.  Lögreglan taldi strax að um leigumorð á vegum mafíunnar hafi verið að ræða en Sylvester var mafíuforingi.

Sky News skýrir frá þessu. Í gær var sonur Sylvester, Anthony Zottola, sakfelldur fyrir samsæri um morðið og að hafa ætlað að láta myrða bróður sinn, Salvatore Zottola. Markmiðið með þessu var að komast yfir fasteignaveldi fjölskyldunnar en það er metið á tugi milljóna dollara.

Anthony Zottola

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Auk Anthony var Himen Ross sakfelldur fyrir morðið og morðáætlun. Réttahöld höfðu þá staðið yfir í sex vikur. Þeir eiga báðir ævilangt fangelsi yfir höfði sér.

Anthony réði Himen Ross til að annast morðin eftir að öðrum leigumorðingja, Ron Cabey, hafði mistekist eftir að hafa reynt nokkrum sinnum að myrða Sylvester á nokkurra mánaða tímabili. Cabey bar vitni fyrir dómi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér