

Við leit í klefa hans fundu fangaverðir farsíma sem hafði verið smyglað inn í fangelsið. Við rannsókn málsins kom í ljós að Cofield hafði notað símann til að hringja í banka einn. Hann sagðist vera milljarðamæringurinn Sidney Kimmel og vildi opna reikning. Til að hann gæti gert það þurfti hann að senda bankanum skilríki og afrit af reikningi á hans nafni, það er að segja nafni Kimmel.
Lögreglan segir að Cofield hafi fengið vitorðsmann sinn til að senda sér myndir af skilríkjum og reikningi á nafni Kimmel. Þetta voru svo vel gerðar falsanir að þær dugðu til að fá bankann til að millifæra 11 milljónir dollara, það svarar til um 1,6 milljarða íslenskra króna, til kaupmanns sem selur svokallaða American Eagle gullmynt. Cofield keypti 6.106 eintök.
Því næst er hann sagður hafa fengið öryggisfyrirtæki til að flytja myntina og síðan setti hann sig í samband við húseiganda einn og bauð honum sem svarar til rúmlega 600 milljóna íslenskra króna fyrir hús hans. Þessu boði tók húseigandinn. Cofield reiddi útborgunina fram og í desember 2020 greiddi hann afganginn af kaupverðinu.
Hann hefur nú verið ákærður fyrir fjársvik og samsæri í tengslum við það, þjófnað á persónuupplýsingum, peningaþvætti og samsæri um peningaþvætti.
Hann neitar sök.