

Þetta sagði Joe Prentice, lögreglustjóri í Okmulgee í Oklahoma, um morðið á fjórum hjólreiðamönnum. New York Post skýrir frá þessu.
Lík fjórmenninganna fundust í Deep Fork River í Oklahoma í síðustu viku. Þá hafði verið lýst eftir þeim eftir að þeir hurfu sporlaust þegar þeir fóru í hjólreiðaferð sunnudaginn 9. október.
Mennirnir hétu Mark Chastain, 32 ára, bróðir hans Billy Chastain, sem var þrítugur, Mike Sparks, 32 ára og Alex Stevens, 29 ára.
Lögreglan segir að þeir hafi verið skotnir til bana og lík þeirra síðan hlutuð í sundur. Hvorki morðvopnið né reiðhjól fjórmenninganna hafa fundist.
Á fréttamannafundi sagði Prentice að lögreglan telji að fjórmenningarnir hafi ætlað að fremja afbrot þegar þeir hurfu. Hann sagði að þetta sé byggt á framburði vitnis sem hafi sagt að mennirnir hafi verið á leið til að verða sér úti um peninga á ólögmætan hátt.
Rannsókn lögreglunnar hefur leitt hana á slóð bílapartasala eins. Á starfsstöð hans fann lögreglan ummerki um „ofbeldisfullan atburð“. En bílapartasalinn er horfinn og leitar lögreglan hans nú.