fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

30 ára gamall blóðdropi leiddi til handtöku í óleystu morðmáli

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 17. október 2022 22:00

Catherine og George Peacock. Mynd:Vermont State Police

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í september 1989 voru hjónin Catherine og George Peacock myrt á heimili sínu í Danby í Vermont í Bandaríkjunum. George var 76 ára og Catherine 73 ára. Þau voru stungin til bana og engin ummerki voru um að brotist hefði verið inn til þeirra.

Lögreglan sendi frá sér tilkynningu í síðustu viku um að henni hefði loks tekist að handtaka meintan morðingja eftir áratuga langa rannsókn.

Hinn handtekni heitir Michael Anthony Louise og er 79 ára. Hann var handtekinn á heimili sínu í Syracuse í New York og var úrskurðaður í gæsluvarðhald þar í ríki á meðan unnið er að framsali hans til Vermont.

Michael Anthony Louise. Mynd:Vermont State Police

 

 

 

 

 

 

 

 

 

CNN skýrir frá þessu og segir að Louise hafi verið kvæntur einni dætra hjónanna þegar þau voru myrt. Grunur féll á hann aðeins tveimur vikum eftir morðin en lögreglunni tókst ekki að tengja hann við þau.

Í maí 2020 leiddi DNA-rannsókn, á blóðdropa, sem fannst í bíl hans í ljós að hann var úr George. Blóðið hafði áður verið rannsakað en niðurstaðan hafði ekki verið afgerandi en vegna tækniframfara tókst nú að fá afgerandi niðurstöðu að sögn lögreglunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie