

Málið snýst um hóp manna, af sýrlenskum ættum, sem eru sakaðir um skipulagða glæpastarfsemi.
Það var þann 14. júní á síðasta ári sem maðurinn var handtekinn þegar hann var að flytja peninga til Svíþjóðar. Í leynihólfi í VW Golf bifreið fundust 2,8 milljónir danskra króna. Maðurinn sagði að fyrrum yfirmaður hans á kaffihúsi í Malmö hafi staðið á bak við þessa peningaflutninga, hann átti bílinn og hafði komið peningunum fyrir í honum.
Maðurinn fékk 10.000 sænskar krónur fyrir hverja ferð.
Ekstra Bladet segir að málið hafi komið upp í tengslum við sameiginlega aðgerð dönsku og sænsku lögreglunnar sem hafi gengið undir heitinu „Operation Aleppo“. Í aðgerðinni var starfsemi þjónustufyrirtækis afhjúpuð en hún var langt frá því að vera innan ramma laganna. Ekki var þó skýrt nánar frá því hvað það mál snýst um.
Saksóknari ákærði manninn upphaflega fyrir að hafa flutt 144 milljónir danskra króna á milli landanna en féllst á lækkun niður í 74 milljónir gegn játningu mannsins.
Ekki kom fram við réttarhöldin hvaðan peningarnir komu en fyrrum háttsettur lögreglumaður hafði áður sagt að líklega hafi þeirra verið aflað með fíkniefnaviðskiptum.