

Það er jafn mikilvægt að borða hollan mat og að hreyfa sig reglulega. Næringarefnin í mat skipta gríðarlega miklu máli þegar kemur að heilbrigði hjartans.
Ef maður borðar of mikið af unnum kjötvörum eða feitum þá getur það hækkað blóðþrýstinginn, aukið magn blóðfitu og hættuna á hættulegum sjúkdómum.
Þess vegna er mikilvægt að borða hollan og næringarríkan mat og gæta þess að innbyrða ekki of magar hitaeiningar.
Sumar fæðutegundir eru betri fyrir hjartað en aðrar og hér nefnum við nokkrar þeirra til sögunnar.
Haframjöl er eitt það hollasta sem við getum borðað. Það inniheldur trefjar og ómega 3 fitusýrur sem eru góðar fyrir hjartað. Það inniheldur einnig töluvert af kalíum, magnesíum og kalsíum en þessi steinefni eru mikilvæg þegar kemur að því að halda blóðþrýstingnum góðum.
Rauðvín getur verið gott fyrir hjartað ef þess er neytt í hóflegu magni. Það þarf varla að segja neinum að óhófleg áfengisneysla er óholl en að fá sér smá dreitil af rauðvíni getur verið gott fyrir hjartað að því er segir í umfjöllun bedrelivsstil. Rauðvín inniheldur mikið af resveratrol sem er andoxunarefni sem dregur úr magni slæmu blóðfitunnar, LDL, og eykur um leið magn góðu blóðfitunnar, HDL. Þessi efni, og fleiri, vernda æðarnar. Það dregur úr líkunum á æðakölkun og hjartaáfalli.
Svartar baunir geta verndað hjartað en þær eru á lista yfir „ofurfæði“ sem er gott fyrir hjartað. Ástæðan er að þær innihalda mikið af B-vítamíni og uppleysanlegar trefjar. Þessi tvö efni hjálpa til við að draga úr magni slæmu blóðfitunnar, LDL. Þær innihalda einnig smávegis af ómega 3 og magnesíum sem vinna gegn háum blóðþrýstingi og lélegu blóðflæði.
Ólífuolía, sem hefur ekki verið hreinsuð, er eitt hollasta fituefnið og leggur sitt af mörkum við að vernda hjartað. Andoxunarefni og fitusýrur, sem eru í ólífuolíu, draga úr uppsöfnun fitu í æðunum og koma í veg fyrir blóðþrýstingsvandamál. Regluleg neysla ólífuolíu heldur blóðfitunni í skefjum og kemur í veg fyrir ótímabæra öldrun æðanna.