fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Færð þú þínar bestu hugmyndir í sturtunni? Nú vita vísindamenn (kannski) af hverju

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 16. október 2022 20:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um allan heim þekkir fólk þá staðreynd að bestu hugmyndirnar koma oft upp þegar verið er í sturtu. En hins vegar er ekki vitað af hverju. Eða kannski er vitað af hverju. Að minnsta kosti telja vísindamenn sig hafa komist að ástæðunni.

Sciencealert segir að árum saman hafi vísindamenn rifist um hin svokölluðu „sturtuáhrif“ og af hverju þau koma fram. Nú hafa tvær tilraunir varpað ljósi á þetta.

Zac Irving, sem starfar hjá University of Virginia í Bandaríkjunum, stýrði þeim. Niðurstaðan bendir til að óhagganleg einbeiting vegna verkefnis geti verið óvinur sköpunargáfu. Það sé því hugsanlega betra að taka sér hlé og skella sér í annað verkefni sem krefst ekki eins mikillar hugsunar, til dæmis að fara í sturtu. Í því umhverfi, sem sturtan er, geti hugurinn reikað frjálsar án tilgangs eða stefnu en þó með ákveðinni þvingun. Vísindamennirnir telja að þegar hugurinn reikar þá sé fólk líklegra til að fá góðar hugmyndir.

Á hinn bóginn virðast leiðinleg verkefni ekki þvinga hugsanirnar nægilega til að frumlegar hugmyndir verði til. Þá sé líklegra að fólk missi einbeitinguna eða haldi áfram að hugsa um upphaflega vandamálið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér