fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Fékk sér samloku að borða í miðju prófi – Hefði betur sleppt því

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 15. október 2022 22:00

Sam Lee.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kennarar um allan heim hafa heyrt hinar fjölbreyttustu afsakanir nemenda á af hverju þeir skila ekki verkefnum á réttum tíma eða af hverju þeir gera þau ekki.

En það eru væntanlega ekki margar afsakanir sem eru betri (eða ótrúlegri) en afsökun hinnar tvítugu Sam Lee sem skilaði prófi, sem hún þreytti, án þess að vera nálægt því búin að ljúka við að svara því.

Hún skýrði sjálf frá málinu á samfélagsmiðlum. Hún sagðist hafa verið að taka stærðfræðipróf en vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar var um heimapróf að ræða.

Á meðan hún var að leysa prófið fékk hún sér bát frá Subway, kjötbollubát, og þá fóru hlutirnir úrskeiðis.

Kjötbolla datt úr bátnum og lenti á lyklaborðinu. Því miður lenti hún á takka sem skilaði prófinu inn til kennarans þrátt fyrir að Sam væri ekki búin með stærsta hluta þess.

Það var ekki hægt að afturkalla þetta og því varð Sam að senda kennaranum tölvupóst og biðja um að fá að endurtaka prófið.

„Kæri prófessor Lastrapes. Ég glímdi við tæknileg vandamál í prófinu í dag. Eitthvað lenti á lyklaborðinu og varð það til þess að prófinu mínu var skilað inn þrátt fyrir að ég væri bara hálfnuð með það. Með „eitthvað“ á ég við kjötbollu sem féll á hörmulegan hátt á lyklaborðið. Ég skil mjög vel að kjötbolla, sem dettur, er engin afsökun fyrir lélegum árangri en er einhver möguleiki á að ég geti fengið að taka prófið aftur?“ skrifaði hún.

Það var hennar lán að kennarinn er mjög skilningsríkur. Hann svaraði henni og sagði að þetta væri ein undarlegasta afsökunin sem hann hefði nokkru sinni heyrt en hann teldi heldur ekki að þetta væri eitthvað sem hún hefði getað skáldað og því fengi hún annað tækifæri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér