

Á kortinu stendur aðeins „Kveðjur“ og Veronica, Jan og Matthijs. Kortið er stílað á Ludwina og Piet Verhoeven í Nieuw-Vennep sem er suðvestan við Amsterdam. Kortið var póstlag sumarið 1980 í Hoeven í Brabant í Hollandi. The Guardian skýrir frá þessu.
Fallegar myndir af tjaldsvæði prýða kortið sem hollenska póstþjónustan kom nýlega í hendur Ludwina. Á það var stimplað: „Óþekkt/ófullnægjandi heimilisfang“. Kortið var nýlega borið út til tjaldsvæðisins, sem myndirnar eru frá. Starfsfólkið þar skýrði frá málinu á samfélagsmiðlum og þannig bárust Ludwina fréttir af kortinu. Það var síðan sent til hennar.
Í viðtali við Omroep Brabant útvarpsstöðina sagði Ludwina að að eiginmaður hennar Piet, sem kortið er einnig stílað á, og mágur hennar, Jan, séu báðir látnir. Jan lést fyrir fjórum árum og Piet í febrúar. „Þess vegna finnst mér svo sérstakt að fá þetta kort,“ sagði hún.
Hún sagðist ekki vita af hverju kortið skilaði sér allt í einu núna: „Heimilisfangið á því er rétt. Ég bý enn á þessum stað. Af hverju kom það allt í einu fram núna?“
Hjá hollenska póstinum var lítið um svör en talsmaður fyrirtækisins sagði að þegar póstur var flokkaður áður fyrr hafi komið fyrir að kort hafi týnst. Einnig sé hugsanlegt að það hafi verið borið út í rangt hús árið 1980 og hafi verið þar, þar til nýlega.