fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

„Ótrúlegt“ – Nýjar upplýsingar um orustu sem var háð fyrir 2.500 árum

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 16. október 2022 10:30

Hluti af beinunum. Mynd:Stefano Vassallo/Superintendence of Palermo/Science

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ævaforn handrit, gamlir vasar með fallegum myndum, sem sýna minnstu smáatriði, og fornleifafundir hafa veitt okkur upplýsingar um fortíðina. Nú er ekki annað að sjá en enn eitt púslið um fortíð okkar hafi fundist.

Rannsóknir á leifum af 30 beinagrindum, sem voru grafnar fyrir um 2.500 árum undan norðurströnd Sikileyjar á Ítalíu, hafa leitt í ljós í að málaliðar ferðuðust mörg þúsund kílómetra til að taka þátt í orustu við grísku nýlenduna Himera sem var á Sikiley.

Science hefur eftir Carrie Sulosky Weaver, fornleifafræðingi við University of Pittsburg, að niðurstöðurnar séu „ótrúlegar“. Hún kom ekki að rannsókninni.

Beinagrindurnar fundust í fjöldagröf.

Weaver sagði að það sé ótrúlegt hversu mikið sé hægt að lesa um eldgamla atburði úr gögnum af þessu tagi.

Gamlir grískir höfundar gerðu orustunni skil á sínum tíma og lýstu því hvernig nágrannanýlendur komu grísku hersveitunum frá Himera til aðstoðar. En í þær frásagnir vantar eitt mikilvægt atriði.

„Grikkirnir höfðu líklega ekki áhuga á að láta hóp málaliða fá heiðurinn af hernaðarsigrum sínum,“ sagði Gillian Shepherd, fornleifafræðingur, við La Trobe University í Ástralíu, í samtali við Science.

Flestir hinna föllnu hermanna voru ekki frá svæðinu í kringum Sikiley heldur frá Miðasíu, Kákasus, Mið-Evrópu og Eystrasalti. Þetta sýna erfðarannsóknir á beinunum.

Rannsóknirnar leiddu einnig í ljós að hinir föllnu voru almennt við góða heilsu og voru því varla þrælar. Þetta bendir til að þeir hafi verið málaliðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér