fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Karlmaður á sextugsaldri ákærður fyrir hótanir – „Þú ættir að hugsa þig aðeins um hvað þú ert að gera gömlum manni“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 6. september 2022 18:00

Héraðsdómur Norðurlands eystra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni en í ákærunni, sem DV hefur undir höndum, segir að hann hafi hótað einstaklingi sem hafði kært vin mannsins. Sú kæra leiddi til þess að höfðað var sakamál á hendur vinarins.

„Eitt skal ég segja þér og það er að ég og mínir félagar sem eru nú flestir búnir að sitja í fangelsi fyrir morð og ýmislegt ljótt við vitum hver þú ert og við vitum líka um hestana þína svo þú ættir að hugsa þig aðeins um hvað þú ert að gera gömlum manni,“ er maðurinn sem er ákærður sagður hafa sagt í skilaboðum sem send voru í samskiptaforritinu Messenger.

Þessar hótanir eru taldar varða við fyrstu málsgrein 108. grein almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Það er að hver sem beitir annan mann eða nána vandamenn hans eða aðra honum tengda líkamlegu ofbeldi, ólögmætri nauðung eða hótun skv. 233. gr. vegna skýrslugjafar hans hjá lögreglu eða fyrir dómi skal sæta fangelsi allt að 6 árum eða sektum ef sérstakar málsbætur eru fyrir hendi.

Það er því ljóst að maðurinn á yfir höfði sér allt að 6 ára fangelsi. Í ákærunni kemur fram að þess sé krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar