fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna gerir alvarlegar athugasemdir við skipan þjóðminjavarðar 

Erla Hlynsdóttir
Mánudaginn 29. ágúst 2022 18:49

Lilja Alfreðsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Stjórn Íslandsdeildar ICOM, Alþjóðaráðs safna, gerir alvarlegar athugasemdir við það hvernig staðið var að ráðningu nýs þjóðminjavarðar sem skipaður var án auglýsingar,“ segir í yfirlýsingu sem stjórn ICOM sendi frá sér nú síðdegis.

Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, ákvað að nýta heimild í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins til að flytja embættismann  stofnana, úr einu höfuðsafni í annað, og skipaði Hörpu Þórsdóttur sem þjóðminjavörð.

Ákvörðun Lilju hefur verið harðlega gagnrýnd af hinum ýmsu aðilum, til dæmis af Félagi fornleifafræðinga og Félagi íslenskra safna og safnamanna (FÍSOS).

Mikilvægt að misnota ekki heimildina og svipta aðra hæfa umsækjendur tækifæri

Stjórn Íslandsdeildar ICOM leggur áherslu á að engar athugasemdir eru gerðar við hæfi nýskipaðs þjóðminjavarðar. Hins vegar þyki rík ástæða til að gera alvarlegar athugasemdir við ráðningarferlið og þau ógagnsæju vinnubrögð sem ráðherra viðhefur í málinu, þar sem þau stangast á við meginreglu sömu laga að opinberlega skuli auglýsa laus embætti og störf hjá ríkinu.

„Mikilvægt sé að misnota ekki heimild 36. gr. laganna með þeim áhrifum að svipta aðra hæfa umsækjendur á starfssviði safna tækifærinu til þess að lýsa framtíðarsýn sinni á starfið og stofnunina, öllum til heilla,“ segir í yfirlýsingu stjórnar ICOM, og ennfremur að stjórnin undirstriki mikilvægi þess „…að undanþáguheimild skuli ekki nýtt eða túlkuð sem viðtekin eða almenn regla, sér í lagi við skipun í ábyrgðarstöðu sem slíka, er felur í sér yfirstjórn eins þriggja höfuðsafna íslenska ríkisins, sem hefur enn fremur ekki verið auglýst síðan árið 2000.“

Vilja endurskoðun á starfsháttum ráðuneytisins

Í yfirlýsingunni er ennfremur bent á að sem aðalstjórnandi safnsins gegnir þjóðminjavörður lykilhlutverki „…og því ber ráðherra að leita allra leiða til að tryggja að til stöðunnar ráðist sá sem telst hæfastur úr hópi umsækjenda um starfið, hagsmuna safnsins og samfélagsins vegna. Með því að kjósa að auglýsa stöðuna ekki lítur ráðherra fram hjá öllum öðrum sem kæmu til greina í stöðuna, auk þess sem ráðherra rúir stjórnsýsluna trausti starfsvettvangsins, sem og samfélagsins alls, með þessari ráðstöfun. Stjórn Íslandsdeildar beinir því í framhaldinu til ráðherra að endurskoða starfshætti og vinnulag ráðuneytisins er kemur að slíkum skipunum og hafa það sem reglu að bjóða fagfólki jöfn tækifæri til þess að sækja um opinberar stöður á við þessa, með fagleg vinnubrögð, gagnsæi og jafnrétti að leiðarljósi.“

 

Undir yfirlýsinguna ritar stjórn ICOM:

 

Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, formaður

Hólmar Hólm, ritari

Anna Friðbertsdóttir, gjaldkeri

Berglind Þorsteinsdóttir, meðstjórnandi

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa