fbpx
Föstudagur 11.júlí 2025
433Sport

Spara sér um 50 milljónir á viku með því að losa sig við Gylfa og fleiri

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 30. maí 2022 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gylfi Þór Sigurðsson er á förum frá Everton nú þegar samningur hans er á enda í lok júní. Gylfi hefur hvorki æft né spilað með Everton í tæpt ár. The Athletic segir frá.

Gylfi hefur ekkert leikið eða æft með Everton eftir að lögregla hóf rannsókn í júlí á síðasta ári, er Gylfi sakaður um að hafa brotið kynferðislega gegn ólögráða einstaklingi. Gylfi hefur verið í farbanni frá Bretlandi síðan þá.

Gylfi hefur verið í herbúðum Everton í fimm ár en hann er dýrasti leikmaður í sögu félagsins. Everton borgaði 45 milljónir punda fyrir Gylfa þegar hann kom frá Swansea sumarið 2017.

The Athletic fjallar um málið og segir að Gylfi, Jonjo Kenny, Cenk Tosun og Fabian Delph fari að öllum líkindum frítt frá félaginu í sumar. Segir Athletic að þessir fjórir leikmenn þéni 300 þúsund pund á viku hjá félaginu. Everton sparar sér því 50 milljónir á viku með því að láta þessa fjóra leikmenn fara.

Everton þarf að skera niður hjá sér en félagið hefur verið illa rekið undanfarin ár og þarf að taka til í rekstri sínum til að standast reglur FIFA um fjárhag knattspyrnufélaga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Kudus keyptur til Tottenham

Kudus keyptur til Tottenham
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Sambandsdeildin: Víkingar í góðum málum

Sambandsdeildin: Víkingar í góðum málum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Íslendingar láta gengið ekki á sig fá – Fjölmenntu þó langt væri í leik

Íslendingar láta gengið ekki á sig fá – Fjölmenntu þó langt væri í leik
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Uppákoma á æfingasvæði Íslands – „Gott að við séum ekki að fara að hitta þá aftur“

Uppákoma á æfingasvæði Íslands – „Gott að við séum ekki að fara að hitta þá aftur“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Andstæðingurinn hrósar stuðningsmönnum Íslands í hástert

Andstæðingurinn hrósar stuðningsmönnum Íslands í hástert
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Arsenal kaupir danska miðjumanninn

Arsenal kaupir danska miðjumanninn
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Íslendingar þrefalt fleiri þrátt fyrir stöðuna

Íslendingar þrefalt fleiri þrátt fyrir stöðuna